Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Samherji mokar inn seðlunum: Græddu 21 milljón á dag – tæpa milljón á klukkustund

Samherji. Þorsteinn Már. Myndin er samsett.
Samherji. Þor­steinn Már. Myndin er sam­sett.

Samherji hagnaðist um 7,8 milljarða króna á síðasta ári, en heims­faraldurinn hafði víðtæk áhrif á reksturinn. Forstjóri félagsins segir að reynt hafi verulega á samstöðu allra og útsjónarsemi, tekist hafi að halda úti skipa­flotanum, vinnslum og annarri starfsemi þannig að reksturinn hafi haldist svo að segja óbreyttur.

Aðal­fundur Samherja var haldinn í gær og þar var ákveðið var að greiða ekki út arð vegna síðasta árs.

Í stuttu máli sagt þá voru rekstrar­tekjur samstæðunnar 46,5 milljarðar króna á árinu 2020 samkvæmt rekstrar­reikningi; hagnaður af rekstri samstæðunnar nam tæplega 8 milljörðum króna.

Ársreikningur Samherja eru ekki í íslenskum krónum heldur í evrum, en upphæðir eru umreiknaðar í íslenskar krónur á meðal­gengi ársins 2020.

Samherji er því áfram í hópi stærstu skatt­greiðenda landsins og greiddu Samherji og starfs­menn 5 milljarða króna til hins opinbera á Íslandi á árinu 2021.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja er eðlilega ánægður með útkomuna:

„Þegar litið er til síðasta árs, má segja að reksturinn hafi verið hálfgerð rússibanareið vegna áhrifa heims­faraldursins. Vegna þessa reyndi verulega á samstöðu allra og útsjónarsemi. Okkur tókst að halda úti skipa­flotanum, vinnslunum og annarri starfsemi, þannig að reksturinn hélst svo að segja óbreyttur. Þetta er afrek samstillts starfs­fólks, leyfi ég mér að fyllyrða.

Ágætt dæmi um þær áskoranir sem við tókumst á við er vinnslu­húsið á Dalvík, sem var tekið í notkun fyrir rúmu ári síðan. Með nýjum búnaði og gerbreyttri tækni komu engir utan­aðkomandi sérfræðingar í húsið mánuðum saman, áskoranir starfs­fólksins voru því margar en samt sem áður var slegið fram­leiðslumet á síðasta fisk­veiðiári. Íslenskt hugvit er áberandi í húsinu, svo og fram­leiðsla flókins búnaðar. Fisk­vinnslurnar okkar vinna að stórum hluta gæða afurðir sem fara beint á borð neytenda veiðs vegar um heiminn.

Annað gott dæmi er koma nýs uppsjávar­skips Samherja, Vilhelms Þorsteins­sonar EA fyrr á þessu ári, allar aðstæður við smíði skipsins voru krefjandi vegna heims­faraldursins. Vilhelm er án efa eitt glæsilegasta skip íslenska flotans og íslensk hátækni er áberandi um borð, auk þess að allur aðbúnaður er góður. Með tilkomu þessa skips dregur verulega úr olíu­notkun þar sem öll hönnun og búnaður miðast við að minnka kolefnis­sporið.“

Eigið fé Samherja í árslok 2020 var samtals 78,8 milljarðar króna og eiginfjár­hlutfallið 72%, sem undir­strikar að félagið stendur fjárhags­lega vel að vígi; ársuppgjörið var kynnt á aðalfundi Samherja sem fram fór í gær, 30. september. Ársreikningunum hefur verið skilað til ársreikningarskrár.

Stjórn félagsins var endur­kjörin. Formaður stjórnar er Eiríkur S. Jóhannsson. Auk hans eru í stjórn Dagný Linda Kristjáns­dóttir, Helga Steinunn Guðmunds­dóttir, Kristján Vilhelmsson og Óskar Magnússon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.
Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi