Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sölumaður dauðans reyndi að stinga lögregluna af – Maður með öxi ógnaði fólki í Grafarholtinu

Lögreglan að störfum í miðborginni Mynd/Lára Garðarsdóttir
Lög­reglan að störfum í mið­borg­inni Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði í ýmsu að snú­ast í gær­kvöldi og í nótt eins og oft­ast um helgar.

Þjófur gekk að kæli og tók drykki úr honum á hót­eli í hverfi 105. Verkn­að­ur­inn náð­ist á örygg­is­mynda­vélar og er lög­reglan komin með upp­tökur í sína vörslu og ritar skýrslu um málið. Svart­fullur ein­stak­lingur var haldið niðri af dyra­vörðum skemmti­staðar í mið­bænum en hann hafði sýnt ógn­andi til­burði. Lög­reglan kærði hann fyrir brot á lög­reglu­sam­þykkt Reykja­vík­ur­borgar. Þá barst lög­reglu til­kynn­ing um slags­mál og fór á vett­vang og fékk fram­burði. Slags­mála­hund­arnir vildu ekki leggja fram kæru en voru upp­lýstir um kæru­ferli lög­reglu.

Í Kópavogi missti öku­maður stjórn á bif­reið sinni í beygju með þeim afleið­ingum að girð­ing skemmd­ist. Bif­reiðin var óöku­fær og dregin af vett­vangi. Ökumaður og far­þegi voru báðir í örygg­is­belti og engin meiðsl skráð af lög­reglu. Tilkynnt var um mögu­lega fíkni­efna­sölu í Kópa­vog­inum ásamt lýs­ingu á hinum grun­aða. Er lög­reglan mætti á vett­vang tók hinn meinti sölu­maður dauð­ans á rás og reyndi að stinga lög­regl­una af. Lög­reglu­menn­irnir voru senni­lega í betra formi en hann en þeir hlupu hann uppi og hand­tóku vegna gruns um sölu og dreif­ingu fíkni­efna. Hinn grun­aði gistir í fanga­klefa á meðan málið er í rann­sókn.

Þá var óskað eftir aðstoð lög­reglu af lög­reglu­stöð 4 sem þjón­ustar Graf­ar­vog, Árbæ og Mos­fellsbæ, vegna þjófn­aðar í bún­ings­klefa sund­laugar þar sem tölvu og far­síma var meðal ann­ars stolið. Í til­kynn­ingu kom fram að upp­lýs­ingar um mein­tan ger­anda séu á vett­vangi. Lög­reglan tók fram­burð af tjón­þola og starfs­mönnum og rit­aði skýrslu í kjöl­farið.

Til­kynn­ing barst um þrjá áfloga­seggi í Mos­fellsbæ og sendir lög­reglan tvo lög­reglu­bíla á vett­vang og var málið skoðað. Ekki voru frek­ari upp­lýs­ingar um málið í dag­bók lög­regl­unnar.

Óljós til­kynn­ing barst um slags­mál í Graf­ar­holt­inu en sam­kvæmt til­kynn­ing­unni gekk aðili um vett­vang og veitt­ist að fólki með öxi, hvorki meira né minna. Vitni á vett­vangi könn­uð­ust ekki við neina öxi en tóku eftir aðila sem féll utan í bif­reið sem ók í burtu af vett­vangi er lög­reglan bar að garði. Öxinni var ekki beitt gegn neinum á vett­vangi. Lög­reglan stöðv­aði akstur umræddrar bif­reiðar stuttu síðar og í henni fannst öxi. Tveir aðilar voru han­teknir og voru þeir vistaðir í fanga­klefa á meðan lög­reglan rann­sakar málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu