Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Anna og Elísa fullyrða að Ingó Veðurguð hafi verið bannaður í félagsmiðstöðvum – Sjáðu svar Samfés

Tvær konur hafa stigið fram í opnum færslum á Facebook og tjáð sig um meint brot Ingólfs Þórarins­sonar eða Ingós Veðurguðs. Í færslum kvennanna kalla þær meðal annars eftir því að Samfés stígi fram og staðfesti það sem þær og fleiri eru að segja, að Ingó hafi verið bannaður á skemmtunum á þeirra vegum vegna ósæmilegrar hegðunar í garð ungra stúlkna, einmitt í tengslum við slíkar skemmtanir.

Sjá einnig: Ingó Veðurguð í viðtali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyði­leggja mannorð mitt“

Elísa Snæ er önnur kvennanna og segir hún að fyrir einhverjum árum hafi hún unnið í Félags­miðstöð og þá hafi verið komið bann á það að ákveðin aðili fengi að spila á skemmtunum fyrir unglinga. Ástæðan var sú að hann hafi verið þekktur fyrir að sitja fyrir stúlkum á heimleið og bjóða þeim far heim. Við erum að tala um 13 til 15 ára gamlar stúlkur á leið heim frá skemmtun í félags­miðstöðinni sinni, segir Elísa. Færsla Elísu endar svo á þessum orðum: „Það er í raun ótrúlegt að það hafi einfald­lega verið hætt að ráða manninn, og látið þar við sitja. Segir eflaust meira um breyttan tíðaranda en annað, að við fagfólk í frístunda­starfi höfum ekki farið með málið lengra á sínum tíma. En nú er tíminn til að færa þetta grund­vallar, lágmarks viðmið aðeins hærra. Ráðum fólk a skemmtanir sem við erum allavega þokkalega viss um að beiti ekki kynferðis­ofbeldi. Þó fyrr hefði verið. Samfés ég skora á ykkur að koma fram og staðfesta þetta bann við ráðningu á ákveðnum manni“.

Elísa Snæ Mynd af Facebook

Sjá einnig: Þetta er fólkið sem henti Ingó af Þjóðhátíð – Nafn­lausar ásakanir kostuðu Veður­guðinn „giggið“

Anna María Þorkels­dóttir sem starfar við skóla og frístunda­deild Breið­holts hafði meðal annars þetta um málið að segja: „Ég er agndofa yfir viðbrögðum kvenna við fréttum dagsins um að ákveðinn tónlistar­maður fái ekki að syngja fyrir framan aragrúa af ungum stúlkum í sumar eftir að tugir stúlkna eru búnar að lýsa framferði mannsins gagnvart þeim. Sumar af þessum konum sem eru að segjast ekki styðja þessa ákvörðun eru ömmur og mömmur stúlkna og þær vilja að þær séu í návígi við mann sem hefur lengi verið þekktur fyrir ósæmilegt atferli. Ein af þeim sem kom fram þurfti að lesa færslu frá ömmu sinni þar sem hún styður þennan mann. Pössum okkur, við vitum ekki hvað dætur okkur og barnabörn hafa lent í, því að það eru fáir sem segja frá af ýmsum ástæðum. Þessi umræða er ekki gripin úr lausu lofti“. Anna María segir að téður maður hafi verið bannaður á skemmtunum Samfés vegna þess að hanna var að sýna unglingum á aldrinum 13 til 15 ára ósæmilega hegðun. „Hann söng á jóla­skemmtun (þar sem voru yngri börn og foreldrar þeirra ) um að maður setur tillann inn og setur tillann út og hristir hann svo til (í Hókí Pókí)“.

Færslu Önnu Maríu má sjá í heild sinni hér.

Anna María Þor­kels­dóttir Mynd af Facebook

Mannlíf kallaði eftir viðbrögðum Samfés

Mannlíf setti sig í samband við Samfés og spurði út í það hvort téðum tónlistar­manni hefði verið meinaður aðgangur að þeirra viðburðum vegna ósæmilegrar hegðunar í garð ungra stúlkna. Svarið frá stjórn Samfés er svo hljóðandi:

 „Hvað varðar skemmtikrafta á viðburðum Samfés þá hafa fulltrúar Ungmenna­ráðs Samfés alltaf valið hverja þau vilja bóka. Viðkomandi hefur ekki komið fram í þeim umræðum né vali frá árinu 2015 samkvæmt vitneskju núverandi stjórnar samtak­anna og framkvæmda­stjóra. Rétt er að taka fram að starfs­fólk félags­miðstöðva og ungmenna­húsa sjá sjálf um að bóka skemmtikrafta á sína viðburði. Samfés kemur ekki að daglegu starfi aðildar­félaga“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi