Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Jón Gnarr afþakkar boð í Spursmál

„Það þætti ykkur nú gaman! að fá að djöfl­ast aðeins í ræfl­inum mér.“

Stefán E. og Jón Gnarr
Stefán E. og Jón Gnarr Stefán segir aðeins hafa verið að gant­ast. Mynd: Samsett

Jón Gnarr afþakk­aði boð Stefáns E. Stef­áns­sonar um að mæta Heiðrúnu Lind Mart­eins­dóttur í Spurs­málum. Stefán sagð­ist þó hafa verið að grín­ast.

Mannlíf sagði frá Facebook-færslu þing­manns­ins Jóns Gnarr á dög­unum en þar benti hann á að Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmd­ar­stjóri SFS, hafi mætt í við­tal um veiði­gjaldið hjá Vísi en hún er einnig stjórn­ar­með­limur Sýnar, sem á Vísi. Í kjöl­far færsl­unnar brugð­ust sumir ókvæða við í athuga­semdum, þar á meðal Erla Björg Gunn­ars­dóttir, rit­stjóri frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar, sem sak­aði Jón um aðför að lýð­ræð­inu, með færslu sinni.

Blaða­mað­ur­inn og sið­fræð­ing­ur­inn Stefán E. Stef­áns­son, sem hefur verið í vand­ræðum með að finna við­mæl­endur í þátt sinn Spursmál á mbl.is, að und­an­förnu, skrif­aði einnig athuga­semd og bíður Jón í þátt­inn:

„Jæja Jón Gnarr. Nú er ekki annað að gera en að mæta Heiðrúnu Lind í Spurs­málum. Hvorugt ykkar situr í stjórn Árvakurs þótt þar væruð þið efa­laust þyngdar ykkar virði í gulli.“

Stefán bætti síðan við athuga­semd: „Jón Gnarr sæki þig í Paulsen, Skeif­unni 2 kl 8:00 á fimmtu­dags­morgun.“

Jón Gnarr svar­aði Stefáni að bragði en hann var hreint ekki á því að þiggja boð sið­fræð­ings­ins.

„Það þætti ykkur nú gaman! að fá að djöfl­ast aðeins í ræfl­inum mér. Hún gæti hrifið mig með talna­speki sinni og þú tekið undir, milli þess sem þú sak­aðir mig um aðför gegn lýð­ræði. Svo gætir þú spilað ein­hvern gamlan skets með mér. Ég ætla því að fá að afþakka þetta góða en samt fyr­ir­sjá­an­lega boð. Fáðu frekar ein­hvern sem er með eitt­hvað bita­stætt og bragð­gott til að troða uppí þig. Nolite te bast­ar­des carborundorum.“

Gervi­lat­ínan sem Jón skrif­aði í lok svars­ins merkir í laus­legri þýð­ingu „Láttu ekki óþokk­ana mala þig niður“ og er þekkt úr skáld­sög­unni The Handmaid’s Tale eftir Margaret Atwood, þar sem hún birt­ist sem leyni­legt mót­stöðuslag­orð. Hún hefur orðið vin­sæl sem hvatn­ing­ar­orð gegn kúgun og órétt­læti, þrátt fyrir að vera mál­fræði­lega röng lat­ína.

Stefán svar­aði Jóni og sagð­ist bara hafa verið að grín­ast.

„Ég var nú bara að grín­ast líka. Myndi ekki nenna að ræða kvóta­kerfið við þig. Okkar slóðir liggja saman ann­ars­staðar. En, hvar er þitt fólk, sem allt þyk­ist vita um þessi mál? Af hverju þora þeir miklu meist­arar ekki að rök­ræða þessi mál?

Varla geta rökin verið þau að ég sé ómál­efna­legur. Ef svo væri, væri sigur þeirra í kapp­ræð­unum vís. Ekki satt?“

Enn bíður sið­fræð­ing­ur­inn eftir svari frá Gnarr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“