Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Askja rumskar eftir 62 ára hlé – Gosið 1875 olli flótta til Vesturheims

Askja
Askja Mynd: Visitnorthiceland.is

Askja hefur verið að bæra á sér að und­an­förnu eftir langt hlé og eru flestir sér­fræð­ingar á því að gos sé yfir­vof­andi. Skiptar skoð­anir hafa þó verið á teg­und vænt­an­legs goss. Kristín Jóns­dóttir nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands telur til að mynda lík­legra að um hraun­gos verði að ræða en Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur er meira á því að gosið verði sprengigos. En hvað þýðir það ef kom­andi Öskjugos verður sprengigos?

Askja gaus alls átta sinnum á síð­ustu öld, síð­ast árið 1961 en öll hin gosin urðu á þriðja ára­tugnum: 1921, 1922 (tvö gos), 1923, 1924, 1927 og 1929. Öll voru gosin nokkuð smá­vægi­leg en það sama má alls ekki segja um Öskju­gosið þann 29. mars árið 1875.

Samkvæmt eld­gos.is er Öskju­gosið 1875 talið stærsta ösku­gos á Íslandi á sögu­legum tíma en það stóð þó ekki í nema nokkra klukku­stundir. Sautján jarðir á Jökuldal lögð­ust í eyði vegna vikur- og ösku­falls og orsak­aði það harð­inda­kalfa á Aust­ur­landi. Varð það til þess að fjöldi Aust­firð­inga flutti til Vest­ur­heims. Danir sáu aumur á Aust­firð­ingum og efndu til fjár­söfn­unar til að koma í veg fyrir hung­ursneyð. Gosefnin úr Öskju­gos­inu eru talin hafa numið 3—4.000.000.000 rúmmetrum.

Fram kemur á eld­gos.is að ógn­væn­legur gosmökkur hafi lagst yfir Aust­ur­land, allt frá Héraði og til Beru­fjarðar. Menn sáu varla handa sinna skil vegna þruma og eld­inga sem fylgdu gos­inu og heitir vikumolar á stærð við tenn­is­bolta féllu tugum kíló­metra frá eld­stöð­inni. Viku­lagið mæld­ist allt að 20 cm þykkt á Jök­ul­dalnum eftir gosið.

Ástæða fyrir þessum ham­förum, sam­kvæmt Vís­inda­vef Háskóla Íslands, hefur verið útskýrð þannig að basalt­gangur hafi kom­ist í snert­ingu við svo­kall­aðan súran gúl undir eld­stöð­inni og það valdið sprengi­virkn­inni. Talið er að þessar aðstæður séu fyrir hendi í nokkrum eld­stöðvum Íslands, meðal ann­ars í Kötlu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar