Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Hlynur ræðir sorgarferlið í kringum barnsmissi: „Erfiðasta sem ég hef farið í gegnum á ævinni“

Hlynur Kristinn í viðtali hjá Sölva Tryggva –
Hlynur Kristinn í við­tali hjá Sölva Tryggva – Mynd: skjáskot Youtube

Hlynur Kristinn Rún­ars­son, fíkni­ráð­gjafi og lög­fræði­nemi, segir gríð­ar­lega sorg fylgja því að fæða and­vana barn. Hlynur, sem er nýjasti gest­ur­inn í hlað­varpi Sölva Tryggva­sonar, hefur gengið í gegnum gríð­ar­lega margt á stuttri ævi en segir sorg­ar­ferlið í kringum fæð­ing­una hafa verið það erf­ið­asta sem hann og konan hans hafa farið í gegnum.

„Við verðum ólétt, en svo kemur í ljós að við værum að fara í gegnum missi eftir 20 vikur og ein­hverja daga. Þann 6 októ­ber 2022 misstum við Mikael. Það er lík­lega það erf­ið­asta sem ég hef farið í gegnum á ævinni þó að það sé af mörgu að taka. Ég myndi lík­leg­ast fara í gegnum allt hitt frekar en að fara aftur í gegnum þetta. Sorgin var gríð­ar­leg og til­finn­ing­arnar mjög flóknar. Allt sem varð ekki, öll vonin sem maður hafði og til­hlökk­unin og fleira. Maður fer í gegnum mik­inn van­mátt, en svo á end­anum áttar maður sig á því að lífið getur bara verið mjög ósann­gjarnt við mjög marga og ég er engin und­an­tekn­ing þar. Það voru margir sem höfðu áhyggjur af því að þetta myndi setja mig út af beinu braut­inni og ég myndi fara að nota gamlar leiðir til að fixa mig. En sem betur fer var ég kom­inn nógu langt í bata til að ná strax að nota öll verk­færin sem ég hafði. Taka einn dag í einu, halda rútínu, leita aðstoðar og fleira.“

Hlynur sem fór á sínum tíma alla leið á botn­inn í neyslu segir að fikt við stera hafi verið upp­hafið að ferli sem varð stjórn­laust. Hann lýsir því í þætt­inum strák sem gekk vel í skóla og átti sér stóra drauma breytt­ist yfir í mann sem end­aði í fang­elsi í Brasilíu eftir til­raun til fíkni­efna­út­flutn­ings.

„Fólk sem fer út í neyslu á oft sögu um að flosna snemma úr skóla og fara af braut fljótt, en það átti ekki við um mig. Ég átti auð­velt með að læra, gekk vel í skóla og var félags­lega sterkur. Í raun og veru voru ekki margir hefð­bundnir ,,indicatorar” um að ég myndi þróa með mér fíkn. En það ger­ist þegar ég er að verða full­orð­inn að þá byrja ég að fikta við stera. Með stera­notk­un­inni þró­aði ég með mér útlits­dýrkun og dóm­greindin byrj­aði að rugl­ast mikið. Ég var stans­laust að setja athygl­ina á það sem væri að við lík­ama minn þegar ég fór að æfa og keppa í fit­ness. Það urðu til mjög miklar rang­hug­myndir hjá mér og út frá því fór leiðin að liggja meira niður á við. Það verða ekk­ert allir rugl­aðir sem prófa stera, en þannig var það svo sann­ar­lega hjá mér,“ sagði Hlynur við Sölva um málið.

„Það sem gerð­ist hjá mér var að ég fékk gríð­ar­lega þrá­hyggju og fór að nota meira og meira af sterum. Afleið­ing­arnar urðu svo þær að ég varð hvat­vís­ari og hvat­vís­ari og slæmur í skap­inu. Sjálfs­myndin var í raun orðin mjög slæm og þetta versn­aði bara og versn­aði. Ster­arnir höfðu mikil hug­breyt­andi áhrif á mig og ég sé það núna hvað ákvarða­taka mín versn­aði mikið eftir að ég byrj­aði að nota þá. Svo leiðir eitt af öðru og þegar þú ert búinn að taka ákvörðun um að gera eitt ólög­legt verður það næsta auð­veld­ara. Smám saman fór ég að fara meira upp á kant við lögin og nota önnur efni og leiðin lá hratt niður á við.“

En Hlynur ætlar ekki að gef­ast upp og ætlar sér að verða lög­fræð­ingur sem berst fyrir mann­rétt­indum fólks.

„Ég gat ekki skilið á sínum tíma að það yrði til­gangur með því sem ég hef farið í gegnum, en nú líður mér svo sann­ar­lega þannig. Það er ekk­ert betra en að geta hjálpað fólki í erf­ið­leikum og að manns eigin reynsla geti orðið að styrk­leika í þeirri veg­ferð. Ég er að læra lög­fræði og ef til vill verð ég að berj­ast fyrir mann­rétt­indum fólks sem lög­fræð­ingur eftir ein­hver ár.“

Hægt er að nálg­ast allt við­talið við Hlyn inn á heima­síðu Sölva Tryggva­sonar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar