Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Eiríkur skilur ekki umræðuna um framhaldsskólana

„Þetta er aug­ljós­lega ein­göngu heim­ild­ar­á­kvæði“

Eiríkur Rögnvaldsson
Eiríkur Rögn­valds­son Eiríkur botnar ekk­ert í gagn­rýn­inni Mynd: Facebook

Eiríkur Rögn­valds­son, pró­fessor emeritus í íslenskri mál­fræði, seg­ist ekki skilja þá and­stöðu sem nýtt ákvæði í lögum um fram­halds­skóla hefur mætt. Í færslu á Facebook hafnar hann því að ákvæðið feli í sér minni kröfur til nem­enda eða svo­kall­aða „lækkun á rá“.

„Ég botna ekki í þeirri and­stöðu sem nýtt ákvæði í lögum um fram­halds­skóla hefur mætt. Því hefur jafn­vel verið haldið fram að með því sé verið að minnka kröfur, „lækka rána“ eins og það er kallað. Mér er ómögu­legt að sjá nokkuð sem bendi til þess,“ skrifar Eiríkur.

Hann bendir á að ákvæðið sé ein­fald­lega heim­ild­ar­á­kvæði og vitnar orð­rétt í texta lag­anna:

„Við ákvörðun um inn­ritun nem­anda er heim­ilt að líta til sjón­ar­miða sem tengj­ast nem­and­anum, þ.m.t. náms­ár­ang­urs í grunn­skóla og ann­arra upp­lýs­inga sem nem­and­inn lætur skól­anum í té, og sjón­ar­miða sem tengj­ast skóla­sam­fé­lagi við­kom­andi skóla, þ.m.t. sem miða að því að auka fjöl­breytni í nem­enda­hópnum.“

Að mati Eiríks felur þetta ekki í sér neina skyldu heldur ein­ungis heim­ild, líkt og hafi gilt í reynd um ára­bil. „Þetta er aug­ljós­lega ein­göngu heim­ild­ar­á­kvæði. enda ber hver skóli ábyrgð á inn­ritun sinna nem­enda eins og verið hefur,“ skrifar hann.

Hann segir jafn­framt að með ákvæð­inu sé ein­fald­lega verið að lög­festa það sem hafi tíðkast, án þess að hafa áður verið skýrt heim­ilað eða bannað í lögum. Þar nefnir hann sem dæmi Versl­un­ar­skóla Íslands. „Með þessu er ein­ungis verið að lög­festa heim­ild fyrir því sem hefur tíðkast – og hvorki verið heim­ilað né bannað í lögum – t.d. í Versl­un­ar­skól­anum þar sem hefur verið ákveð­inn kynja­kvóti.“

Eiríkur rifjar einnig upp eldri reglur um inn­ritun í fram­halds­skóla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og segir umræð­una bera keim af skamm­tíma­minni. „Kannski er fólk líka búið að gleyma því að hér áður fyrr var inn­ritun í fram­halds­skóla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu háð búsetu – og það var ekki heim­ild­ar­á­kvæði heldur alveg fast.“

Þá bendir hann á að nem­endur hafi aðeins kom­ist í til­tekna skóla ef þeir voru búsettir í ákveðnum hverfum, með fáum und­an­tekn­ingum. „Und­an­tekn­ing var þó gerð ef eldri systk­ini höfðu verið í skól­anum,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu