Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Örn Guðmundsson ráðinn framkvæmdastjóri Háskóla Íslands

Fyrr­verandi forstjóri Mannvits og COWI ráðinn framkvæmda­stjóri HÍ

Örn Guðmundsson færir 25 ára stjórnunarreynslu yfir til Háskóla Íslands
Örn Guð­munds­son færir 25 ára stjórn­un­ar­reynslu yfir til Háskóla Íslands Mynd: Kristinn Ingvarsson

Örn Guðmundsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmda­stjóra Háskóla Íslands (HÍ) og hefur hann þegar hafið störf. Örn tekur við keflinu af Guðmundi Ragnari Jónssyni, sem lætur af störfum sökum aldurs eftir áramót. Til að tryggja hnökra­lausa yfir­færslu á hinu umfangs­mikla og flókna hlutverki munu þeir starfa saman næstu mánuði.

Viðamikil reynsla úr atvinnulífinu

Örn býr yfir 25 ára reynslu af stjórnunar- og leiðtoga­störfum innan stórra skipulagsheilda. Hann var framkvæmda­stjóri COWI Ísland ehf. á árunum 2023–2024 og þar á undan framkvæmda­stjóri Mannvits hf. árin 2018–2023, þar sem hann gegndi einnig starfi fjármála­stjóra árin 2015–2018. Þá var hann aðstoðar­framkvæmda­stjóri hjá Kaupþingi hf. á árunum 2009–2015.

Samhliða þessu situr Örn í bankaráði Lands­bankans, þar sem hann hefur stýrt endur­skoðunar- og áhættu­nefndum, og er stjórnar­formaður Almennings­samgangna höfuð­borgar­svæðisins ohf. Hann útskrifaðist með Cand.oecon. próf frá Háskóla Íslands árið 1996 og lauk meistara­gráðu í alþjóða­viðskiptum frá Copenhagen Business School árið 1998.

Leiðir fjögur stór stoðsvið skólans

Í starfi sínu sem framkvæmda­stjóri mun Örn leiða hluta sameiginlegrar stjórn­sýslu HÍ í umboði rektors. Undir verksvið hans heyrir yfir­umsjón með fjórum lykil­sviðum:

  • Fjármála­sviði
  • Framkvæmda- og tækni­sviði
  • Mannauðs­sviði
  • Upplýsinga­tæknisviði

Hlakka til samstarfsins

Silja Bára R. Ómars­dóttir, rektor Háskóla Íslands, fagnar ráðningunni og segir skólann heppinn að fá jafn reynslu­mikinn stjórn­anda til liðs við sig. „Ég hlakka til að vinna með Erni að því að styrkja rekstur háskólans og gera góðan vinnustað enn betri,“ segir Silja Bára.

Örn segir það mikinn heiður að ganga til liðs við skólann. „Ég hlakka til að kynnast öflugu starfs­fólki skólans og vinna með því að áfram­haldandi þróun skólans, traustum rekstri og góðri þjónustu við háskóla­samfélagið,“ segir Örn af þessu tilefni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.
Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi