Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Ragnar Þór Ingólfsson býður sig aftur fram: „Stóru málin verða sem fyrr húsnæðismálin“

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, mun bjóða sig fram til áfram­haldandi formennsku í félaginu, en þetta tilkynnir Ragnar í færslu í Facebook núna áðan; kosningarnar fara fram í mars.

„Ég hef tekið ákvörðun um að bjóða mig fram til áfram­haldandi formennsku í VR en kosningar fara fram í félaginu í mars næst­komandi. Þrátt fyrir neikvæða umræðu um verkalýðs­hreyfinguna stendur VR ákaflega vel. Starf stjórnar og skrif­stofu VR hefur verið fram­úrskarandi gott og einkennst af mikilli samheldni og virðingu. Á síðasta ári fór félags­aðild í fyrsta skipti yfir 40 þúsund sem gerir félagið að lang stærsta stéttar­félagi landsins.“

Hann segir að „við munum halda áfram þeirri góðu vinnu við breytingar á félaginu til að koma betur til móts við breytingar á vinnu­markaði og ólíkar þarfir ólíkra hópa innan okkar raða. Meira um það síðar.

Það hefur farið mikil orka í innbyrðis átök á vettvangi ASÍ og er hreyfingin þver­klofin hvað það varðar. Ég trúi því að hreyfingunni beri gæfa til að vinna sig í gegnum þessa stöðu á komandi framhalds­þingi ASÍ og mun ég leggja mitt af mörkum svo það megi verða.“

Ragnar er áþví að „stjórnar­starfið í VR hefur gengið afskaplega vel. Að vinna í slíku umhverfi þar sem þú ert alltaf með vindinn í bakið eru ekki bara forréttindi heldur gerir það okkur kleift að vinna mun fleiri hagsmuna­málum okkar brautar­gengi. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Við erum liðsheild og allir leggja sitt af mörkum í að vinna sem best fyrir félags­fólkið okkar.

Rekstur og staða félagsins hefur aldrei verið sterkari og starfs­andi vart verið betri í þau 14 ár sem ég hef setið í stjórn og sem formaður félagsins.“

Ragnar bendir á að starfið sé „mikil og óeigingjörn vinna þar sem allir leggja hönd á plóg og styðja hvert annað í þeim fjölmörgu mála­flokkum sem félagið beitir sér í og eru kjörnum fulltrúum okkar hugleikin hverju sinni. Mínar áherslur verða sem fyrr segir að halda áfram að bæta kjör og réttindi okkar félags­fólks og berjast fyrir rétt­látara samfélagi og veita stjórn­völdum nauðsynlegt aðhald. Við höfum nú þegar hafið vinnu við gerð langtíma kjara­samnings sem byrjaði á viðræðum um starfs­menntamálin 19. janúar. Við munum hefja viðræður um stytttingu vinnu­vikunnar, fjölgun orlofs­daga og fjarvinnu 14. mars næst­komandi og svo koll af kolli.“

Ragnar ætlar að berjast af hörku gegn spillingu:

„Ég mun einnig leggja mikla áherslu á jafnréttis­málin og áfram­haldandi gott samstarf við önnur hagsmuna­samtök í almanna­þágu. Stóru málin verða sem fyrr húsnæðis­málin. Þar ber helst að nefna aukna leigu­vernd og aðgerðir vegna stöðu þeirra sem eru með stökk­breytt húsnæðislán. Og áfram­haldandi uppbyggingu Bjargs og Blævar. VR er að hefja framkvæmdir við byggingu leigu­íbúða fyrir félags­fólk VR í gegnum Blæ, sem er nýtt húsnæðis­félag sem er ætlað til uppbyggingar á hagkvæmu húsnæði án tekju­marka. Hugmynda­fræðin í kringum Blæ er að höfða til fjár­festinga lífeyris­sjóða inn á húsnæðis­markað og hef ég leitt það verkefni á vettvangi hreyfingarinnar sem og frekari uppbyggingu Bjargs fyrir tekjulága.

Ég mun halda áfram að berjast gegn spillingu í íslensku samfélagi en fyrst og fremst einbeita mér að því frábæra starfi sem stjórn og starfs­fólk VR hefur unnið á vettvangi réttlætis og kjara­baráttunnar.“

Ragnar er bæði baráttuglaður og þakklátur:

„Ég er ákaflega þakklátur fyrir þann mikla stuðning sem ég hef fengið frá ykkur í gegnum árin í þessari vegferð minni á vettvangi réttlætis­baráttunnar og vona ég að svo verði áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi