Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Dr. Skúli segist hafður fyrir rangri sök – Sjúklingur hans missti part úr eyra

Skúli Tómas Gunnlaugsson.
Skúli Tómas Gunn­laugs­son.

Yfir­læknirinn fyrr­verandi sem sakaður er um að bera ábyrgð að dauða sex sjúklinga sinna á HSS segist vera borinn röngum sökum.

Sjá einnig: Álit land­læknis á máli Skúla læknis: „Ómeðhöndlaðar sýkingar kunni að hafa verið aðal dánar­orsök“
Sjá einnig: Ólafía er eitt af 14 meintum fórnar­lömbum dr. Skúla: „Í rauninni sveltur hún til dauða á níu dögum“

Skúli Tómas Gunnlaugsson læknir, sem sætir lögreglu­rannsókn vegna gruns um að valda dauða sex sjúklinga sinna á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja árin 2018-2020, segist í nýrri Facebook-færslu vera borinn röngum sökum. Er læknirinn sakaður um að hafa valdið dauða sjúklinganna með því að setja þau í tilefnis­lausar lífsloka­meðferðir. Segir hann ennfremur að hann og tveir aðrir fyrrum starfs­menn HSS, sem einnig hafa réttar­stöðu grunaðra í málunum, hafa þurft að „heyja sína baráttu í kyrrþey“. Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

„Kæru vinir.

Um langt skeið hef ég ranglega verið borinn afar þungum sökum um tilefnis­lausar lífsloka­meðferðir meðan ég starfaði á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja. Lögum samkvæmt hef ég ekki getað borið hönd fyrir höfuð mér vegna þagnar­skyldu. Umfjöllunin hefur því verið algjör­lega einhliða, afar villandi og hreinlega röng. Nú þegar rannsókn lögreglu er á lokastigi, get ég þó upplýst að niður­staða dómkvaddra matsmanna í málunum er að sjúklingarnir hafi allir látist af náttúru­legum orsökum.Ég fagna því mjög að rannsókn lögreglu sé að ljúka og að það hilli undir að niður­stöður verði opinberar. Nú fer málið, sem er miklu flóknara en haldið hefur verið fram opinber­lega, lögum samkvæmt til héraðs­saksóknara, til þess sem kallað er ákæru­meðferðar, sem þýðir í raun að farið er yfir niður­stöður rann­sóknarinnar og ákvörðun um fram­haldið tekið.Þeir sem setið hafa undir ósann­gjarnri, einhliða og villandi fjölmiðla­umfjöllun vita hversu erfið raun það er. Það á ekki síst við um heilbrigðis­starfsfólk, sem er í mjög veikri stöðu ef bornar eru á það sakir. Að geta ekki svarað fyrir rangindi og þurfa að sitja undir einhliða málflutningi er oft á tíðum óbærilegt og ég fullyrði að fátt ógnar starfs­öryggi þeirra meira en þetta. Öryggi starfs­manna og sjúklinga fer nefnilega saman.Við erum þrjú sem vorum til rann­sóknar. Við höfum þurft að heyja okkar baráttu í kyrrþey vegna þagnar­skyldu og þurft að sitja undir ótrúlegustu ásökunum á opinberum vettvangi. Sann­leikurinn hefur aldrei vafist fyrir öllum þeim sem komu að umönnun sjúklinganna frá upphafi og rannsókn lögreglu og dómkvaddra matsmanna stað­festir það sem ljóst hefur verið alla tíð.

Ég vil nota tækifærið og þakka vinum mínum, vinnu­félögum og öllum þeim sem hafa staðið við bakið á mér í þessari þrauta­göngu. Sumir þeirra hafa haft tækifæri og þekkingu til að kynna sér málið í þaula og áttað sig á staðreyndunum. Ég vil líka þakka fjölmörgum fyrrum samstarfs­mönnum mínum á HSS sem hafa sýnt mér mikinn stuðning frá upphafi.“

Mannlíf hefur fjallað ítarlega um málið frá því að það kom upp en tilfelli Dönu Jóhanns­dóttur vakti sérstakan óhug. Hún kom í hvíldar­innlögn inn á HSS en var sett á lífsloka­meðferð af Dr. Skúla og lést 11. vikum síðar. Var hún alvarlega vannærð, með þvag­farasýkingu sem ekki var meðhöndluð og með alvarleg legusár sem að sama skapi voru ekki meðhöndluð almennilega. Partur af eyra hennar datt af vegna legusárs.

Sjá einnig: Beggi Dan: „Síðustu vikurnar í lífi móður minnar voru henni hreinasta kvalræði“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi