Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Prófar eitthvað nýtt á hverjum degi

Sólveig Pálsdóttir. Mynd / Hákon Davíð Björnsson
Sólveig Páls­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Sólveig Páls­dóttir, rit­höf­undur, seg­ist ekki strengja ára­móta­heit í eig­in­legri merk­ingu, en hún passi betur upp á holl­ust­una í jan­úar en ella auk þess sem hún hafi í mörg ár fylgt gömlu heiti um það að prófa eitt­hvað nýtt á hverjum degi. En ætlar hún að strengja ára­móta­heit í ár?

„Já, svei mér þá, ætli ég geri það ekki bara,“ segir Sólveig spennt. „ Ára­móta­heitið mitt er hreint ekk­ert stór­brotið eða skáld­legt heldur felst það í því að halda áfram að gera æfing­ar­útín­una mína að minnsta kosti fimm sinnum í viku og ganga fimm til sjö kíló­metra, helst dag­lega. Ég byrj­aði á þessu í fyrstu Covidbylgjunni þegar öllum lík­ams­rækt­ar­stöðvum var lokað og fyrir utan pen­inga­sparn­að­inn þá svín­virkar þetta, bæði fyrir lík­ama og sál. Svo er það auð­vitað að umgang­ast skemmti­legt og gef­andi fólk.“

Ertu vön að strengja ára­móta­heit?

„Nei, ég get varla sagt það en er kannski með eitt­hvað í bak­þank­anum því jan­úar ein­kenn­ist alltaf af holl­ari mat og litlu víni eftir lystisemdir des­em­ber­mán­aðar,“ segir Sólveig. „Reyndar hef ég eina reglu sem mætti kannski kalla ára­móta­heit og það er að læra eitt­hvað nýtt á hverju ein­asta ári. Oftast hefur það verið eitt­hvað bók­legt en nú er ég að hugsa um að læra eitt­hvað allt annað til dæmis mynd­list, leir­kera­gerð eða smíði. Já, og svo ákveð ég alltaf að vera öguð í vinnu eftir ára­mót en rit­höf­unda­starfið krefst sjálf­saga, ekki síst fyrir félags­lynda mann­eskju eins og mig. Fyrir svona tutt­ugu árum  strengdi ég þess heit að gera tíu nýja hluti á hverjum ein­asta degi og við það stóð ég í mörg ár. Reyndar er þetta orðið svo inn­gróið í mig að ég hugsa að ég prófi ennþá eitt­hvað nýtt á hverjum degi. Þetta nýja þarf ekki að vera flókið heldur bara eitt­hvað eins og til dæmis að labba eða keyra nýja leið heim, hlusta á tón­list sem þú hefur ekki heyrt áður, rabba við ein­hvern sem þú hefur aldrei talað við áður, prófa nýja upp­skrift, lesa um eitt­hvað sem þú þekkir ekki, greiða þér öðru­vísi og svo fram­vegis. Ég hef trölla­trú á þess­ari aðferð til að halda hug­anum virkum og skap­andi.“

Hvaða aðferð gefst best til að standa við heitin sam­kvæmt þinni reynslu?

„Þá sjaldan sem ég hef strengt heit þá finnst mér virka best að skrifa þau niður. Þannig breyt­ast óljósar hug­myndir í skýr mark­mið,“ full­yrðir Sólveig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers