Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Tannleysi falið vandamál hjá ungu fólki: „Síðan verður barnið 18 ára – og hver grípur það þá?“

Greinin hefur verið upp­færð.

Blaða­maður Mannlífs ræddi við Oddnýju Jakobs Krist­ín­ar­dóttur, yfir­ráð­gjafa á tann­lækna­stof­unni Íslenska Klíníkin í Búdapest.

Þetta er partur af öðrum hluta umfjöll­unar um Íslensku Klíník­ina og tann­lækn­ingar í Búdapest. Fyrsti hluti þess­arar umfjöll­unar birt­ist á mann­lif.is nýverið og fleiri pistlar munu birt­ast þar á næst­unni.

Oddný segir að mik­ill meiri­hluti þeirra sem koma út á stof­una frá Íslandi er fólk sem þarf á miklum eða stórum með­ferðum og aðgerðum að halda.

„Þetta eru lang­tíma vanda­mál. Í sumum til­fellum er þetta fólk sem komið er á efri ár og hefur kannski ekki sinnt tönn­unum vegna ábyrgðar og ann­arra skyldna í líf­inu. Það voru alltaf börnin, eða húsið eða eitt­hvað annað. Vegna þess að þetta er svo dýrt heima. Nú erum við með kerfi heima á Íslandi sem virkar þannig að börn fá skoðun einu sinni eða tvisvar á ári, sem kostar 2.500 krónur, sem ríkið borgar. Þetta er bara skoðun, en ekki við­gerð. Við­gerð­ina þarf fólk síðan að borga sjálft. Þú sem for­eldri sinnir þessu og þar sem skoð­unin er orðin svo til frí þá get­urðu gripið oftar inn í, þannig að reikn­ing­ur­inn verður kannski lægri, ef þú ert ekki það óhepp­inn að barnið sé með lélegan gler­ung eða annað slíkt, sem kostar heil­mikið. Eða ef það þarf að fara í tann­rétt­ingar.“

[innsk. blm. Athygli rit­stjórnar Mannlífs hefur verið vakin á því að ráð­gjafi hjá Íslensku Klíník­inni í Búdapest, hafi farið með rangt mál hvað varðar greiðslu fyrir tann­við­gerðir barna á Íslandi. Þær eru gerðar við­kom­andi að kostn­að­ar­lausu fram til 18 ára ald­urs, að und­an­skildu komu­gjaldi upp á 2.500 krónur á ári og leið­rétt­ist sú rang­færsla hér með. Tann­rétt­ingar falla þó ekki þar undir. Um er að ræða við­tal þar sem ýmis­legt fleira er haft eftir ráð­gjafa, í beinni ræðu, og liggur ábyrgð á þeim orðum hjá þeim sem þau mælir. Rit­stjórn Mannlífs þykir miður og harmar ef við­mæl­andi blaðs­ins hefur farið með rangt mál í full­yrð­ingum sínum um starfs­hætti tann­lækna á Íslandi.]

„Síðan verður barnið þitt 18 ára – og hver grípur það þá? Því að í 90 pró­sent til­fella held ég að for­eldrar séu ekki að hnippa í börnin sín tvisvar á ári eftir að þau verða 18 ára og minna þau á að fara í skoðun. Svo spá þau jafn­vel ekk­ert í þetta fyrr en í kringum 25 ára aldur og þá er þetta kannski orðið ansi mikið sem þarf að gera og reikn­ing­ur­inn hár; „Ég fór til tann­læknis og hann segir að það þurfi að gera þetta og þetta, og það kostar bara 400.000 krónur.“ Svo þau hunsa þetta: „Æ, mér er nú ekk­ert illt.“ Og við taka önnur tíu ár. Þannig að ég held að fólk frá 18 ára og alveg upp að 35 ára aldri sé bara hópur sem við verðum að grípa. Því ég veit að þú myndir ekki trúa því hvað það er margt fólk í þessum ald­urs­hópi með gervi­tennur.“

Blaða­manni var boðið út á vegum Íslensku Klíník­ur­innar í Búdapest, stofu í eigu Íslend­inga. Umfjöll­unin er gerð í sam­starfi við stof­una.

Blaða­maður ein­setur sér að skrifa af fag­mennsku og fjalla af heið­ar­leika um það sem fyrir augu hans bar.

Umfjöll­un­ina, sem og við­talið við Oddnýju í heild sinni má nálg­ast í nýjasta helg­ar­blaði Mannlífs á vefnum hér.

Einnig er hægt að næla sér í ókeypis ein­tak í versl­unum Bónuss og Hagkaupa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu