Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Guðni vill meira

Guðni Th. Jóhannesson, fyrrum forseti Íslands, er alls ekki hrifinn af ananas á pítsur
Guðni Th. Jóhann­es­son, fyrrum for­seti Íslands, er alls ekki hrif­inn af ananas á pít­sur

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, mun vænt­an­lega til­kynna um ára­mótin um áform sín varð­andi fram­boð til emb­ætt­is­ins í vor. Óumdeilt er að Guðni er frá­bær for­seti sem hefur verið þjóð sinni til sóma í emb­ætti sínu á Bessa­stöðum. Hann hefur kom­ist í gegnum tvö kjör­tíma­bil án þess að vera stað­inn að neinu sem ekki sam­ræm­ist skyldum hans og heiðri. Mál sem komu upp í kringum for­seta­rit­ara voru leyst í róleg­heit­unum og tryggt að for­seta­stíðin er slétt og felld.

Guðni hefur haldið spil­unum þétt að sér og ekk­ert sagt opin­ber­lega um áform sín á nýju ári. Daður hans við Morg­un­blaðið og Davíð Oddsson þykir vera vís­bend­ing um að hann leiti friðar og stuðn­ings handan víg­línu and­stæð­ing­anna. Mörgum er í fersku minni að Guðni lagði fram­bjóð­and­ann Davíð með brauki og bramli þegar hann var upp­haf­lega kjör­inn. Áður sig­ur­sæll Davíð var nið­ur­lægður og ræki­lega stimpl­aður.  Nýlegt og furðu­legt afmæl­is­boð for­set­ans á Bessa­stöðum í til­efni af meintu 110 ára afmæli Moggans þykir vís­bend­ing um að hann leiti stuðn­ings þaðan.

Við upp­haf for­seta­tíðar sinnar taldi hann eðli­legt að sitja í tvö kjör­tíma­bil. Hann hefur ekk­ert sagt um það und­an­farið en verið áber­andi í emb­ætti. Nær full­víst er að hann gefi kost á sér þriðja kjör­tíma­bilið og vafa­lítið verður hann end­ur­kjör­inn. Hann ber þess öll merki að vilja meira.

Enginn mun hafa roð í hann í kosn­ing­unum í vor. Við síð­ustu kosn­ingar skor­aði Guð­mundur Franklín Jónsson hót­el­stjóri for­set­ann á hólm en var afgreiddur af kjós­endum með mik­inn minni­hluta atkvæða. Áður hafði Ástþór Magn­ús­son athafna­maður og jóla­sveinn, ítrekað boðið sig fram og upp­skorið fylgis­tölur sem varla ná því að vera kenndar við lét­töl. Spurning er hvort gamlir draugar muni stíga fram í vor og keppa við sitj­andi for­seta um hið háa emb­ætti.

Viðbúið er að for­set­inn muni í ára­móta­ávarpi sínu til­kynna um vilja sinn til að sitja þriðja kjör­tíma­bilið og upp­skera lófa­klapp þjóð­ar­innar til sjávar og sveita …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Slúður