Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Fundaði með Evrópumálaráðherra Slóvakíu

„Njótum bæði góðs af Evr­ópu­sam­starfi og hinum sam­eig­in­lega innri mark­aði Evrópu”

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Juraj Blanár
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Juraj Blanár Mynd: Utanríkisráðuneytið

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra fund­aði í gær með Juraj Blanár, utan­ríkis- og Evr­ópu­mála­ráð­herra Slóvakíu, sem staddur er hér á landi í opin­berri heim­sókn. Markmið heim­sókn­ar­innar er að efla sam­skipti og sam­starf Íslands og Slóvakíu á ýmsum sviðum.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá stjórn­völdum ræddu ráð­herr­arnir meðal ann­ars tví­hliða sam­skipti ríkj­anna, Evr­ópu­mál og stöð­una í Úkraínu. Þá voru einnig rædd tæki­færi til auk­ins sam­starfs, meðal ann­ars á sviði jarð­varma­nýt­ingar og í háskóla­sam­starfi.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að fjöl­margir íslenskir nem­endur hafi um ára­bil sótt sér heil­brigð­is­menntun í Slóvakíu og að mögu­leikar til frekara sam­starfs á því sviði hafi verið til umræðu á fund­inum.

Í heim­sókn sinni á Íslandi fund­aði Blanár einnig með for­seta Íslands, Höllu Tóm­as­dóttur, auk þess sem hann átti fund með utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis.

„Það var ánægju­legt að taka á móti Blanár og sjá áhuga hans og stjórn­valda í Slóvakíu á nán­ara sam­starfi við Ísland. Það er margt sem við eigum sam­eig­in­legt með Slóvökum, við erum tvö stór­huga smá­ríki, við erum banda­menn í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og njótum bæði góðs af Evr­ópu­sam­starfi og hinum sam­eig­in­lega innri mark­aði Evrópu. Fjöl­margir íslenskir háskóla­nemar hafa sótt sér heil­brigð­is­menntun í Slóvakíu og í dag eru yfir 200 nem­endur þar í landi. Það er mik­ill vilji fyrir því að styrkja sam­starfið á sviði heil­brigð­is­mála frekar,” sagði Þor­gerður Katrín. „Mér þótti það sér­stak­lega áhuga­vert að ræða aug­ljós tæki­færi til þess að miðla íslenskri sér­þekk­ingu í nýt­ingu jarð­varma í Slóvakíu. Mér skilst að jarð­varma má finna á um þriðj­ung land­svæðis þeirra en að ekki sé verið að nýta þannig góða kost til orku­fram­leiðslu. Þannig að það eru fjöl­mörg tæki­færi til þess að rækta við­skipta­sam­bandið okkar frekar.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Öskurapi með vesen

Tveir gistu í fangageymslum lögreglu í nótt.
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Viðreisn mælist með 9,2 prósenta fylgi og Miðflokkurinn með 15,1 prósent. Atli Þór segir Miðflokkinn „hreinlegri“ kost.
  • Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi