Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Konur engir englar

Konur fremja glæpi rétt eins og karlar en þó almennt færri og brotin eru síður alvar­leg en hjá körlum. Þetta segir Helgi Gunn­laugs­son, pró­fessor í afbrota­fræði við Háskóla Íslands, í við­tali við Vikuna. Hann bætir því við að ef konur hegð­uðu sér eins og karlar þá myndi ríkja hálf­gert villta vest­urs ástand í sam­fé­lag­inu og að sama skapi væri tölu­vert rólegra um að lít­ast ef karlar hegð­uðu sér almennt eins og konur.

„Hér á landi eru konur að jafn­aði innan við tíu í fang­elsi hverju sinni en karl­arnir eru vel á annað hund­rað. Hlut­fallið er ekki ósvipað í öðrum löndum,“ segir Helgi og heldur áfram. „Vandi ungra karla á jaðr­inum er því sér­stakt umhugs­un­ar­efni fyrir okkur öll. Hegð­un­ar­vand­kvæði drengja eru mun útbreidd­ara í skóla­kerf­inu, brott­fallið hærra og vímu­efna­vandi karla dýpri. Þurfum við því ekki átak og nýja áætlun í skóla­kerf­inu til að mæta þörfum margra drengja? Í Háskóla Íslands þar sem ég starfa er til að mynda stór meiri­hluti nem­enda konur – hvar eru drengirnir?“

En hvers konar glæpi fremja konur? Eru glæpir kvenna ann­ars konar en karla? Hvað er það helst sem greinir kynin að? „Glæpir kvenna tengj­ast yfir­leitt minni háttar auðg­un­ar­brotum eins og hnupli, þjófn­aði, skjala­falsi eða brotum eins og kyn­lífs­þjón­ustu eða neyslu fíkni­efna. Alvar­legir ofbeld­is­glæpir, meiri háttar auðg­un­ar­brot og við­skipta- og póli­tískir glæpir, eru aftur á móti framdir í mun rík­ari mæli af körlum. Þrátt fyrir að meiri­hluti kyn­ferð­is­brota sé með karl­kyns ger­anda og kven­kyns þol­anda megum við samt ekki gleyma því að öll kynjaflóran (hann, hún, hán) getur verið bæði þol­andi og ger­andi í kyn­ferð­is­brota­málum. Og það sama á við um ofbeldi nákom­inna.“

Ýtarlegt við­tal er að finna við Helga í nýj­ustu Vikunni. Tryggðu þér ein­tak eða áskrift.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers