Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Fjölnir segir ástandið í íslensku samfélagi vera hræðilegt: „Og við erum komin með barnamorð“

Und­an­farnar vikur og mán­uði hafa lög­reglu­menn þurft að leita sér hjálpar; farið í veik­inda­leyfi vegna mála sem eru á meðal þeirra þyngstu er hafa komið upp hér á landi.

Formaður Lands­sam­bands lög­reglu­manna segir að afar oft hafi verið varað við stöð­unni:

„Lögregla kemur á vett­vang og gerir sitt og áfallið kemur ekki þegar þú ert að vinna verk­efnið. Það kemur ekki fyrr en þú ert kom­inn heim til þín, hittir börnin þín,“ segir Fjölnir Sæmunds­son, sem er for­maður Lands­sam­bands lög­reglu­manna, í sam­tali við RÚV.

Þetta árið hefur þremur börnum verið ráð­inn bani; fjórum full­orðnum.

Tekur Fjölnir það fram að hann vilji ekki láta öll þessi afar sorg­legu mál snú­ast um við­bragðs­að­ila; vottar aðstand­endum samúð:

„Svona áföll koma eftir á, þegar fólk jafn­vel mætir í vinnu aftur og finnur svo hvað það er erfitt að vera í vinn­unni og ég veit til þess að fólk hefur óskað eftir meiri aðstoð. Það hafa verið margir viðr­un­ar­fundir og fólk er að nýta sér sál­fræði­að­stoð sem rík­is­lög­reglu­stjóri býður upp á,“ segir hann og bætir við:

„En auð­vitað þegar svona kemur upp að þá eru bara fyrstu við­brögð hjá mér og mörgum hjá lög­regl­unni; við erum búin að segja ykkur þetta. Við erum búin að tala og tala um þetta heil­lengi. Það er auk­inn vopna­burður, það er aukin harka og fyrstu við­brögð eru eins og eng­inn hafi verið að hlusta.“

Fjölnir nefnir að „það hafa verið ónot yfir þessum aukna vopna­burði sem lög­reglu­menn hafa auð­vitað séð í sínum störfum. Fólk er vopnað – það er verið að stoppa bíla, ung­lingar eru vopn­aðir – og eins og við höfum sagt: Ef þú berð hníf þá er alltaf hætta á að þú notir hann, þó þó ætlir þér það ekki.“

Fjölnir er á þeirri skoðun að það hafa verið mis­tök að fækka hverf­is­lög­reglu­stöðvum; að gjá hafi mynd­ast á milli almenn­ings í land­inu og lög­regl­unnar – nú þegar fólk hefur ekki eins greiðan aðgang að lög­regl­unni:

„Það þarf líka að auka sektir við vopna­burði og stoppa inn­flutn­ing á vopnum til lands­ins. Það þarf að taka harðar á þessu, að fólk megi ekki bera vopn á sér eða flytja inn vopn.“

Fjölnir segir það kunn­ug­legt stef að fara í átak til að bæta stöð­una; átak er síðan renni sitt skeið á enda, og það bara megi ekki ger­ast:

„Þetta er bara hræði­legt ástand og ég hef bara varla getað tjáð mig um þetta. Þetta er svo mikil sorg fyrir þetta fólk sem á ætt­ingja sem hefur týnt lífi síð­ustu ár. Og við erum komin með barna­morð. Þetta er bara óskilj­an­legt,“ segir Fjölnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir