Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Gæskur/Gæskan

Ég er Aust­firð­ingur í húð og hár. Það er að segja í móð­ur­ætt, en föð­ur­ættin er dreifð­ari. En mestan part ævinnar hef ég búið á Aust­ur­landi og er stoltur af fjórð­ungnum mínum, þótt ég hafi flutt þaðan í borg­ina fyrir þó nokkrum árum. Þar á ég enn systk­ini, móður og fjölda ætt­ingja og vina. Allt sem aust­firskt er þykir mér vænt um, flá­mælsk­una, sem því miður er allt að því útdauð, hóg­værð­ina (séu Borg­firð­ingar teknir út fyrir svig­ann), veðrið, fólkið Aust­fjarða­þok­una og orð eins og gæskur og gæskan.

Ég tala við mömmu mína nokkrum sinnum í viku, en hún býr í Fellabæ fyrir austan en er Esk­firð­ingur í grunn­inn. Hún kveður mig alltaf með orð­inu gæskur: „Við heyr­umst, gæskur“. Það þykir mér afar vænt um. Þegar ég kom heim í sum­ar­frí þegar Covid-far­ald­ur­inn var í rénun og fór í sund á Egils­stöðum blasti við mér afar aust­firsk sjón. Á gólf­inu við afgreiðsl­una og við heita pott­ana stóð innan í hjarta: „Tveir metrar gæskur“ og „Tveir metrar gæskan“. Þá fannst mér ég virki­lega vera kom­inn heim. Þegar ég skrifa afmælis­kveðjur á Facebook skrifa ég alltaf gæskur eða gæskan, ef ég þekki afmæl­is­barnið vel. Mér finnst orðið svo hlý­legt. En það eru ekki allir sam­mála því.

Á dög­unum benti ég les­anda Mannlífs, sem hneyksl­að­ist í athuga­semdum á frétt, en greini­legt var að les­and­inn hafði ekki lesið meira en fyr­ir­sögn­ina. Ég benti les­and­anum kurt­eis­is­lega á að lesa frétt­ina: „Lestu frétt­ina, gæskan“. Reyk­vískur vinnu­fé­lagi minn sagð­ist hafa verið nálægt því að hringja í mig þegar hann sá þessi orð mín því honum þótti þau svo dóna­leg. Það kom á mig fát, enda var ekki ætlun mín að tala niður til kon­unnar, þvert á móti. Eftir að ég gerði hávís­inda­lega skoð­ana­könnun á Facebook, komst ég að því, mér til undr­unar, að tals­verður fjöldi fólks telur það geta verið niðr­andi að kalla fólk gæskur eða gæskan. Af þeim 137 Facebook-vinum mínum sem tóku þátt í könn­un­inni voru 22 sem töldu að orðin gætu verið niðr­andi, 111 töldu svo ekki vera og fjórum var drullu­sama. Þau sem fannst orðið geta verið niðr­andi voru lang­flest ekki frá Aust­ur­landi og oftar en ekki frá Reykja­vík og hin flest að austan.

Í raun er hægt að nota hvaða orð á nið­ur­lægj­andi hátt, það fer eftir blæ­brigðum í rödd­inni, aðstæðum og fleiru, en það er algjör óþarfi fyrir Reyk­vík­inga að vera hræddir við orðin gæskur og gæskan. Orðin eru fal­leg og með hlýja merk­ingu, en slái maður inn orð­inu gæska á orða­net­síðu Árna­stofn­unar koma upp orð eins og góð­mennska, blíða, ástúð og bróð­ur­þel svo eitt­hvað sé nefnt. Segi ég því við þig les­andi góður, hafðu það gott gæskur/gæskan.

Pistill þessi birt­ist í nýju Sjó­ara­blaði sem hægt er að lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027