Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ágústa hjólar í Eld Smára

„Ætlum við að leyfa þessum eldi að brenna áfram óáreittum innan flokks­ins og breiða út mann­hatur í nafni hans?“

Ágústa og Eldur
Ágústa og Eldur Ágústa vill slökkva eld­inn

Ágústa Ágústs­dóttir, vara­þing­kona Mið­flokks­ins, beinir hörðum orðum til Elds Smára Krist­ins­sonar, for­manns Sam­tak­anna 22, í færslu á Facebook þar sem hún kallar eftir við­brögðum innan flokks­ins vegna ummæla hans um trans­fólk.

„Þögn er sama og sam­þykki. Ég segi Nei! SLÖKKVUM ELDINN!“ skrifar Ágústa í upp­hafi færslu sinnar sem hún beinir til flokks­fé­laga sinna víða um land.

Ágústa seg­ist hafa orðið fyrir von­brigðum með yfir­lýs­ingu Elds Smára sem birt­ist eftir lands­þing Mið­flokks­ins í októ­ber. Hún seg­ist undr­andi á því að „sam­kyn­hneigður karl­maður sem sjálfur til­heyrir minni­hluta­hópi [...] finnur hjá sér svo mikla þörf [...] að ráð­ast sér­stak­lega gegn til­veru trans­fólks með því ótrú­lega hatri sem hann einmitt er svo þekktur fyrir.“ Í færsl­unni kallar Eldur Smári trans­kon­una Önnu Margréti Grét­ars­dóttur, sem er einn af stofn­með­limum Mið­flokks­ins, „kven­gervil“ og notar rangt per­sónu­for­nafn á hana.

Færsla EldsFærsla Elds fór fyrir brjóstið á þing­kon­unni

Hún full­yrðir að yfir­lýs­ing Elds, þar sem hann skrif­aði að „Íslensk stjórn­mála­saga var skrifuð í kvöld. Mið­flokks­konur neita að vera kall­aðar sís­konur,“ hafi verið til skammar og rang­túlkun á afstöðu flokk­skvenna. „Ég verð nú að við­ur­kenna að þegar þessar heilu tvær konur í mál­efna­hópnum fóru í þessa "sís" umræðu og urðu engum nema sjálfum sér til full­kom­innar skammar með fram­komu sinni og algerum skort á mann­gæsku og til­lit­semi, kom ég all­veg af fjöllum því það eina sem popp­aði upp í hug­ann er ég reyndi að skilja þessa skamm­stöfun, var Samtök íslenskra sam­vinnu­fé­laga!“

„Já því­líka stjórn­mála­sagan sem þarna var skrifuð!“ bætir hún við kald­hæðn­is­lega.

Þing­konan spyr hvort flokks­menn eigi að sætta sig við slíka fram­komu. „Er þetta kjarni Mið­flokks­ins? Ég veit að svo er ekki,“ segir hún og bendir á að „vilj­andi sé verið að vega per­sónu­lega að frá­bærri reynslu­mik­illi konu [...] vegna þess eins að vera trans­kona.“

Ágústa gagn­rýnir jafn­framt orð Elds Smára um að hann hafi verið „djúpt snort­inn“ af þökkum kvenna í flokknum sem töldu hann hafa vald­eflt þær. „Það er nú gott og blessað að Eldur Smári sé djúpt snort­inn, því hvernig má annað vera þegar nýjir litlir skó­sveinar birt­ast sem vilja tigna meist­ar­ann,“ skrifar hún.

Hún minnir á að Anna Margrét Grét­ars­dóttir hafi flutt „hug­rakka þrumu­ræðu“ á lands­þing­inu og fengið „stand­andi lófa­klapp og fögnuð nán­ast allra í salnum.“

Í lok færsl­unnar skorar Ágústa á for­ystu flokks­ins að bregð­ast við:

„Ætlum við að leyfa þessum eldi að brenna áfram óáreittum innan flokks­ins og breiða út mann­hatur í nafni hans? Ætlar for­ystan að leyfa það? Er það mál­frelsi? Þögn er sama og sam­þykki. Ég er stoltur Mið­flokks­fé­lagi og ég segi nei! SLÖKKVUM ELDINN!“

Í athuga­semd við færslu Ágústu svar­aði Eldur Smári gagn­rýn­inni.

„Mér sýn­ist einmitt þetta inn­legg í umræð­una sýna nákvæm­lega það að þessa umræðu eigi að kæfa áður en hún fær að byrja,“ skrifar hann og ver orða­notkun sína.

„Ég kall­aði karl­inn vita­skuld kven­gervil þar sem hann lifir í slíku kyn­gervi. Kyngervi er nota bene orð sem Samtökin '78 sömdu - ekki ég.“

Hann segir að ef fólki mis­býði orða­val sitt, þá hafi Ágústa ekki gert athuga­semdir við önnur hug­tök sem notuð eru í umræð­unni, líkt og „sís-konur, sís-hommi, sís-karl, hinsegin, leg­hafi, pung­hafi,“ eða „orða­sam­bandið að úthluta kyni við fæð­ingu.“

Eldur segir jafn­framt að færsla Ágústu geri „lítið úr því unga og fram­bæri­lega fólki sem hefur sleg­ist í för með flokknum og lætur þessi mál sig varða.“

Að lokum skrifar hann: „Sann­leik­ur­inn er ekki hatur. Og eitruð sam­kennd og með­virkni er heldur ekki kær­leikur. Eigðu góðan dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“