Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Samstöðin dregur úr rekstri vegna lögsókna auðmanna: „En því miður höfum við litlar varnir“.

Gunnar Smári Egilsson
Gunnar Smári Egilsson Mynd: Facebook

Sam­stöðin hefur dregið úr frétta­skrifum í sparn­að­ar­skyni vegna lög­sóknar meintra auð­manna á hendur Hjálmari Frið­riks­syni blaða­manni sem kraf­inn er um 15 millj­ónir króna. Það eru fjár­fest­arnir Arnar Hauksson, Jón Einar Eyj­ólfs­son og Pétur Árni Jónsson, útgef­andi Við­skipta­blaðs­ins, sem  krefj­ast þess að Hjálmar greiði þeim þrjár millj­ónir króna hverjum í miska­bætur auk drátt­ar­vaxta og máls­kostn­aðar vegna skrifa um bruna þar sem sex­tugur maður lét lífið. Þá krefst Elja, félag þre­menn­ing­anna þess að fá þrjár millj­ónir auk vaxta og kostn­aðar. Lögmaður Hjálmars krefst þess að hann verði sýkn­aður.

Hjálmar Frið­riks­son blaða­maður.

Auk krafna þre­menn­ing­anna, sem vilja fá þrjár millj­ónir á mann frá Hjálmari, gerir félag þeirra Elja-þjón­ustu­mið­stöð atvinnu­lífs­ins kröfu upp á 3 millj­ónir í skaða­bætur vegna fjár­tjóns og þrjár millj­ónir að auki í miska­bætur. Þá bæt­ast við kröfur um máls­kostnað og drátt­ar­vexti. Málið er á dag­skrá hér­aðs­dóms 17. des­em­ber 2024.

Um er að ræða tvær fréttir sem Hjálmar skrif­aði á vef Sam­stöðv­ar­innar um bruna á Funa­höfða í Reykja­vík í októ­ber 2023 þar sem rúm­lega sex­tugur pólskur karl­maður lét lífið. Vísir segir frá stefn­unni.

Pétur Árni Jónsson Mynd / Heild

Frétt­irnar umdeildu eru með eft­ir­far­andi fyr­ir­sagnir: „Sann­leik­ur­inn er þó að Elja stundar nútíma þræla­hald, sem hefur nú dregið mann til dauða á Íslandi“

„Nú hafa þessir vafasömu starfs­hættir dregið mann til dauða“.

„Það ætti ekki að koma neinum á óvart að það má hafa góðar tekjur af þræla­haldi. Svo er raunin með Elju“.

Gunnar Smári Egilsson, útgef­andi Sam­stöðv­ar­innar og leið­togi Sósi­alista­flokks­ins upp­lýsir um lög­sókn­ina í Facebook-færslu. „Þetta mál er m.a. ann­ars ástæða þess að við drógum tíma­bundið úr frétta­skrifum á vef Sam­stöðv­ar­innar meðan við fjár­mögnum þessi mála­ferli,“ skrifar Gunnar Smári og segir að mála­ferlin sé kostn­að­ar­söm, jafn­vel þótt við sigur vinn­ist og dóm­stólar stað­festi að auð­ugt fólk verði að sætta sig við gagn­rýni og aðhald eins og annað fólk.„Þetta er sá raun­veru­leiki sem blaða­menn og litlir fjöl­miðlar búa við í dag. Auðfólk notar afl sitt til að þagga niður í umfjöllun og hræða fólk frá því að fjalla um athafnir þess. Það vill vaða um sam­fé­lagið án aðhalds, fara sínu fram. Sam­stöðin er fátæk útvarps- og sjón­varps­stöð sem rekin er með stuðn­ingi fólks sem sættir sig ekki við sam­fé­lag sem hin auð­ugu stjórna,“ skrifar Gunnar Smári og óskar eftir stuðn­ingi almenn­inngs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir