Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Mætir í jólamatinn með náttföt í poka

Eva Ruza Miljevic. Mynd / Unnur Magna
Eva Ruza Miljevic. Mynd / Unnur Magna

Eva Ruza Miljevic, fjöl­miðla­kona, segir flestar skemmti­leg­ustu jóla­minn­ingar sínar tengj­ast móður sinni, sem standi í ströngu við að reyna að fá fjöl­skyld­una til að halda sig á mott­unni á aðfanga­dags­kvöld. Það gangi hins vegar ekki vel og þrátt fyrir að allir mæti í sínu fín­asta pússi í jólamat­inn séu allir komnir í nátt­föt um leið og búið er að kyngja aðal­rétt­inum.

„Margar af ves­enis jóla­minn­ing­unum mínum snú­ast aðal­lega um hana elsku mömmu,“ segir Eva Ruza og hlær „Hún er alltaf með sveppa­súpu í for­rétt á jól­unum, sem er sú allra besta í heimi. Nema ves­enið þegar ég var yngri var að ég borð­aði ekki sveppi en elskaði súp­una. Þannig að alltaf á aðfanga­dag stóð mamma greyið með sigti og sigtaði svepp­ina frá súp­unni fyrir einn disk svo ég gæti borðað án þess að fá klígju. Ég vildi sem sagt að súpan væri elduð með svepp­unum, en ekki borða þá. Sem betur fer elt­ist þetta vesen af mér og ég borða alla súp­una með bestu lyst í dag – mömmu til mik­illar gleði.“

Þrátt fyrir að þurfa ekki lengur að sigta súp­una ofan í dyntótta dóttur sína er aðfanga­dags­kvöld enn í dag mikil þrekraun fyrir móður Evu.

„Mamma fær alltaf verki á aðfanga­dags­kvöld, enn í dag,“ útskýrir Eva. „Við systur mætum í okkar fín­asta pússi heim til mömmu og pabba, pabbi í spari­fötum með bindi, en um leið og aðal­rétt­ur­inn er búinn erum við komnar í nátt­föt á ljós­hraða. Mömmu dreymir um að við séum öll í spari­föt­unum fram eftir kvöldi, en við hlustum ekk­ert á það. Pabbi rífur vana­lega af sér bindið yfir súpu­disk­inum og er kom­inn í stutt­erma­bol á sama tíma og við systur. Ég meina, allir búnir að smella af fínu jóla­mynd­inni við jóla­tréð og algjör óþarfi að hangsa lengur i spari­fötum. Og já, ef þið eruð að spá, þá komum við með nátt­föt i poka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu