Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Dásamlegt að klæðast silkináttkjól eftir langan dag

Sara Sólrún Aðal­steins­dóttir verslar mest í second hand-búðum en skemmti­leg­ast finnst henni að finna flíkur sem eru ekki endi­lega í tísku og gera þær að sínum eigin. Við fengum að skyggn­ast inn í fata­skáp Söru.

„Ég myndi lýsa mínum per­sónu­lega stíl sem bæði töff og krútt­legum. Oftast mjög ein­földum og þægi­legum ofar öllu. Ég elska, sem dæmi, silki­n­átt­kjól­inn minn sem er yfir­burða þægi­legur. Það er ekk­ert betra en að klæða sig í hann eftir langan dag,“ segir Sara en hún úskrif­að­ist frá Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð árið 2017 og hefur síðan skipst á að ferð­ast og vinna en hún stefnir nú á skipti­nám.

„Ég tók sex mán­uði í að vinna og ferð­ast en ég vann sem versl­un­ar­stjóri hjá Brauð&Co en fór svo í sex vikna ferða­lag um Asíu. Í dag stunda ég nám við Háskóla Íslands þar sem ég er að læra félags­ráð­gjöf. Ég veit fátt skemmti­legra en að skoða heim­inn og er spennt að læra meira og kom­ast von­andi út í frekara nám.“

„Eftir að hafa horft á heim­ild­ar­mynd­ina The True Cost ákvað ég með­vitað að reyna að hætta að stunda „fast fas­hion“ og nýta frekar fötin sem ég á eða kaupa þau notuð.“

Spurð hvaðan Sara sæki inn­blástur nefnir hún fyrst nágranna okkar á Norð­ur­löndum. „Það eru margar töff skand­ína­vískar stelpur á Instagram en ann­ars finnst mér mest gaman að finna eitt­hvað sem er ekki endi­lega í tísku og gera það að mínu. Ég versla mest í second hand-búðum, Fata­mark­að­inum og Gyllta kett­inum en eftir að hafa horft á heim­ild­ar­mynd­ina The True Cost ákvað ég með­vitað að reyna að hætta að stunda „fast fas­hion“ og nýta frekar fötin sem ég á eða kaupa þau notuð. Að því sögðu kaupi ég sjaldan hluti sem hafa lítið nota­gildi en ég fell oft­ast fyrir hvítum skyrtum og drapp­lit­uðum fötum. Mér finnst lang­skemmti­leg­ast að kaupa buxur enda eru þær svo­lítið krefj­andi, maður þarf að koma sér í ákveð­inn gír og máta ótelj­andi buxur þangað til maður finnur hið full­komna snið.“

„Nýjustu kaupin í fata­skápnum mínum eru þessi rúskinnsjakki en hann hékk uppi á vegg í versl­un­inni Gyllta kett­inum og starði svo stíft á mig að ég ein­fald­lega varð að taka hann með mér heim.“
„Upp­á­halds­flíkin mín er silki­slopp­ur­inn og silki­n­átt­kjóll­inn sem ég keypti af ynd­is­legri konu í Hoi An í Víetnam.“
„Upp­á­halds­fylgi­hlut­ur­inn minn er þetta háls­men sem ég fékk í útskrift­ar­gjöf frá mömmu og er úr Milagros-lín­unni frá Orra Finn.“
„Svo eru það eyrna­lokkar úr Ouroboros-lín­unni, einnig frá Orra Finn, sem ég keypti fyrir sjálfa mig í útskrift­ar­gjöf, og Marc Jacobs-taskan. Sól­gler­augun eru líka skemmti­leg en þau fann ég í lít­illi búð í London og skilst að þau séu frá sjö­unda ára­tugnum.“
Marc Jacobs taskan er í upp­á­haldi hjá Söru.
„Þessar leð­ur­buxur átti mamma þegar hún var jafn­gömul mér en þær hafa mikið til­finn­inga­legt gildi í mínum huga. Eins þykir mér vænt um vegg­teppið frá society 6, beltið úr Geysi sem og þessar Sexy/bitch-spennur sem hægt er að fá í Spútnik.“

Fullt nafn: Sara Sólrún Aðal­steins­dóttir.
Starfs­heiti: Námskona og brauð­sölu­kona.
Aldur: 20 ára.
Fal­leg­asti fata­lit­ur­inn: Nátt­úru­legir tónar, sér­stak­lega drapp­litað.
Besta lykt í heimi: Dark rum-lyktin frá malin + goetz.
More is less eða Less is more: Less is more.
Áhugamál: Pimple popp­ing-mynd­bönd eru áhuga­málið mitt.

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers