Anna Kristjánsdóttir veltir fyrir sér hvað ysti kantur hægrisins sér í Katrínu Jakobsdóttur.
Í nýjustu dagbókarfærslu sinni talar Anna Kristjánsdóttir um Eurovision og svo um forsetakosningabaráttuna á Íslandi. Í þeim kafla Facebook-færslunnar furðar hún sig á stuðningi við Katrínu Jakobsdóttur úr óvæntri átt, ysta hægrinu.
Anna segist ekki efast um að Katrín sé vel hæf til embættisins en sér þó meinbug á því að fá aðila í forsetastólinn, sem er með „litríka pólitíska fortíð í farteskinu“. Að lokum spaugar hún með slagorð Framsóknarflokksins úr síðustu kosningum og snýr „því upp á margfaldan fallkandidat fyrri forsetakosninga“ og spyr: „Er ekki bara best að kjósa Ástþór?“
Hér má sjá orð Önnu um stuðninginn við Katrínu Jakobsdóttur í heild sinni:
„Undanfarna daga hafa stuðningsyfirlýsingar til handa Katrínu Jakobsdóttur til embættis forseta Íslands komið frá hinu mætasta fólki þar sem flest hver eru vel þekkt innan samfélagsins. Sjálf er ég ekki í nokkrum vafa um að Katrín sé vel hæf til embættisins þótt ég sjái ákveðin tormerki á því að sjá aðila með litríka pólitíska fortíð í farteskinu.
Svo sé ég að Morgunblaðið undir ritstjórn Davíðs Oddssonar hampar henni út í eitt og í kjölfarið hefi ég séð stuðningsyfirlýsingar frá mönnum á ysta hægrikanti, mönnum á borð við Hannes Hólmstein Gissurarson og Pál Vilhjálmsson lýsa yfir stuðningi henni til handa og ég fer að velta fyrir mér hvað gerir hana svona eftirsóknarverða í augum hægrisins?Þegar svona er komið sögu fer ég að velta fyrir mér þekktu kosningarslagorði Framsóknarflokksins frá síðustu Alþingiskosningum, sný því upp á margfaldan fallkandidat fyrri forsetakosninga og spyr einfaldlega:Er ekki bara best að kjósa Ástþór?(Ofangreind orð má samt ekki túlka sem stuðning minn við Ástþór fremur en einhvern annan).“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






































Athugasemdir