Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Lögreglan gerði mistök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Maðurinn hafði bókað gist­ingu og átti flug­miða til baka, en lög­regla taldi skýr­ingar hans á til­gangi ferð­ar­innar ófull­nægj­andi.

Komusalur Leifsstöðvar.
Komu­salur Leifs­stöðvar. Hér­aðs­dómur taldi ákvörðun lög­reglu um að vísa manni frá land­inu ólög­mæta, en sýkn­aði íslenska ríkið af skaða­bóta­kröfu hans. Mynd: Víkingur

Albanskur rík­is­borg­ari sem var meinað að koma til Íslands í des­em­ber 2023 hefur tapað skaða­bóta­máli gegn íslenska rík­inu. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri nið­ur­stöðu að upp­haf­leg ákvörðun lög­reglu um að vísa mann­inum frá land­inu hefði ekki verið í sam­ræmi við lög, en að skil­yrði skaða­bóta­á­byrgðar væru engu að síður ekki upp­fyllt.

Dómurinn var kveð­inn upp 2. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Maðurinn kom til Kefla­vík­ur­flug­vallar frá Ítalíu 12. des­em­ber 2023. Við landamæra­eft­ir­lit taldi lög­regla hann ekki geta gert nægi­lega grein fyrir til­gangi heim­sókn­ar­innar. Hann sagð­ist ætla að skoða íslenska nátt­úru, hafði bókað gist­ingu og átti flug­miða til baka fjórum dögum síðar.

Lögregla taldi hins vegar skýr­ingar hans ófull­nægj­andi. Þá hafði sam­ferða­maður hans brota­feril á Íslandi, sem einnig hafði áhrif á ákvörðun lög­reglu.

Samkvæmt lög­reglu­skýrslu sýndi mað­ur­inn lög­reglu­mönnum Instagram-reikn­ing sinn og sagð­ist vera frægur í heima­landi sínu þegar hann var spurður hvort hann skildi ástæður frá­vís­un­ar­innar.

Honum var gert að halda sig á afmörk­uðu svæði flug­stöðv­ar­innar þar til hann yfir­gæfi landið. Lögmaður hans óskaði síðar eftir end­ur­upp­töku máls­ins og var ákvörð­unin aft­ur­kölluð næsta morgun. Hafði mað­ur­inn þá dvalið á flug­vell­inum í tæp­lega sól­ar­hring.

Maðurinn höfð­aði mál og krafð­ist við­ur­kenn­ingar á skaða­bóta­skyldu rík­is­ins vegna meintrar ólög­mætrar frels­is­svipt­ingar og fjár­hags­legs tjóns.

Hér­aðs­dómur taldi að upp­haf­leg ákvörðun lög­reglu hefði byggst á ófull­nægj­andi mati á svörum manns­ins.

Dómurinn taldi þó ekki sýnt fram á sak­næma hátt­semi lög­reglu sem gæti skapað bóta­skyldu. Þá hefði mað­ur­inn ekki verið frels­is­sviptur í laga­legum skiln­ingi, enda hefði honum verið heim­ilt að yfir­gefa Ísland.

Íslenska ríkið var því sýknað af öllum kröfum manns­ins og máls­kostn­aður felldur niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu