Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Skora á flugfélög að neita að flytja Yazan úr landi:„Ekki eitthvað sem við getum látið bjóða okkur“

Yazan Tamimi vill búa á Íslandi –
Yazan Tamimi vill búa á Íslandi – Mynd: Aðsend

Samtökin No Borders Iceland hafa gefið frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þau skora á öll starf­andi flug­fé­lög á Íslandi að neita því að flytja Yazan Tamimi úr landi.

Í yfir­lýs­ingu sem sam­tökin No Borders Iceland birtu á Facebook í morgun, skora sam­tökin á öll starf­andi flug­fé­lög á Íslandi að neita fyr­ir­skipun yfir­valda að flytja hinn 11 ára Yazan Tamimi úr landi en hann er á flótta ásamt for­eldrum sínum frá Palest­ínu. Eins og alþjóð veit er Yazan greindur með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Duchenne en það er einn ágeng­asti og alvar­leg­asti sjúk­dóm­ur­inn af þessu tagi. Fram kemur í yfir­lýs­ing­unni að lækn­is­vott­orð sýni fram að það eitt að vera fluttur upp í flug­vél geti orðið honum að bana.

Til stóð að senda Yazan og for­eldra hans úr landi til Spánar, þar sem þau höfðu milli­lent á leið sinni til Íslands, fyrr í sumar en þeirri ákvörðun var frestað fram í ágúst. Á næstu dögum má búast við að fjöl­skyldan verði sótt af lög­regl­unni og send úr landi en heilsa Yazan hefur hrakað mjög í sumar eftir að rof varð á heil­brigð­is­þjón­ustu hans en hann var fluttur á dög­unum á bráða­deild Barna­spít­ala Hrings­ins.

No Borders taka fram í yfir­lýs­ingu sinni að bæði flug­fé­lögin og þeir lög­reglu­menn sem tækju þátt í að vísa Yazan úr landi, væru „jafn með­sek í því ódæð­is­verki og sjálfir ráða­menn“.

Hér má lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni:

No Borders Iceland skorar á öll starf­andi flug­fé­lög á Íslandi að neita því að flytja Yazan Tamimi úr landi.

Yazan Tamimi er 11 ára drengur á flótta frá Palest­ínu. Hann er greindur með vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­inn Duchenne sem er einn ágeng­asti og alvar­leg­asti vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm­ur­inn. Lækn­is­vott­orð hefur sýnt fram á að það eitt að vera fluttur upp í flug­vél getur orðið honum að bana.

Lífslíkur þeirra sem ekki fá með­ferð við sjúk­dómnum eru um 19 ár.

“Það er líka ljóst að verði rof á þess­ari þjón­ustu getur það verið lífs­hættu­legt og stytt hans ævi. Benda má á að 30% drengja með Duchenne vöðva­rýrnun deyja í kjöl­farið á falli eða hnjaski.” segir í lækn­is­vott­orði Yazan. Auk þess sem fag­fé­lög á borð við ÖBÍ, Þroska­hjálp,

Einstök börn og Duchenne sam­tökin hafa for­dæmt brotvís­un­ina.

Ekkert flug­fé­lag sem státar sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð ætti að sætta sig við það að fram­kvæma ill­virki á borð við það að senda lang­veikt og dauð­vona barn úr landi og á göt­una á Spáni þar sem það verður, án dval­ar­leyfis og lækn­is­þjón­ustu. Þetta er ekki eitt­hvað sem við getum látið bjóða okkur. Að öllu óbreyttu á Yazan aðeins örfá ár eftir ólifuð.

Að lokum vill No Borders Iceland árétta það að öll þau flug­fé­lög og það lög­reglu­fólk sem tekur þátt í brott­vísun Yazan eru jafn með­sek í því ódæð­is­verki og sjálfir ráða­menn, við höfum öll okkar val um að standa upp og gera það sem er rétt.

Við hvetjum öll flug­fé­lög til þess að velja mannúð og sam­fé­lags­lega ábyrgð og vonum að bæði lög­reglan og stjórn­völd sjái sóma sinn í að gera það líka, jafn­vel þótt það væri ekki af fyrra bragði.

Yazan á heima hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Leki varpar ljósi á við­skipti Deutsche Bank við Epstein

Upphæðin er meira en tvöfalt hærri en áður hafði komið fram í rannsókn bandarísks öldungadeildarþingmanns. Skjölin ná einnig til skattagagna Trumps.
Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Heimur

Banda­ríkin missa stöðu sína sem land án misl­inga

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Lögregla rannsakar einnig tilkynningu um líkamsárás í miðborginni.
Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti