Rétt fyrir klukkan níu morgun varð árekstur tveggja bíla á Suðurlandsbraut við Vegmúla.
Kalla þurfti til sjúkrabíl og lögreglu á vettvang og var Suðurlandsbraut lokað tímabundið. Eins og sést á myndum er báðir bílarnir nokkuð skemmdir og endaði annar þeirra upp á vegkanti.
Samkvæmt sjónarvotti sem Mannlíf talaði við virtust ökumenn bílanna vera lítið slasaðir en það hefur ekki verið staðfest hversu margir voru í bílunum þegar áreksturinn átti sér stað eða hvort fleiri hafa slasast.


Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir