Borgarstjóri lagði á fundi borgarráðs í dag fram tillögu um sérstaka niðurgreiðslu á matarþjónustu Reykjavíkurborgar fyrir tekjulága eldri borgara. Tillagan kemur í kjölfar þess að samþykkt var af núverandi meirihluta að gjald fyrir máltíð í matarþjónustu borgarinnar yrði hækkað úr 1.100 krónum í 1.900 krónur. Slíkt sætti mikilli gagnrýni í borginni,
Samkvæmt tillögunni munu notendur matarþjónustunnar sem eru undir nánar skilgreindum tekjuviðmiðum greiða 1.500 krónur fyrir hverja máltíð í stað 1.900 króna. Lægra gjaldið á að gilda óháð því hvort máltíðar er neytt í félagsmiðstöð, þjónustuíbúðum eða hún heimsend.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir nauðsynlegt að draga úr áhrifum hækkunarinnar á þá sem hafa lægstar tekjur.
„Við teljum nauðsynlegt að verja lægstu tekjuhópana gegn þungum gjaldskrárhækkunum og leggjum því til sérstakar niðurgreiðslur fyrir tekjulægsta hópinn,“ segir Hildur.
Hún bendir jafnframt á að þrátt fyrir hækkun gjaldsins úr 1.100 krónum í 1.900 krónur séu heimsendar máltíðir fyrir eldri borgara enn hagstæðari í Reykjavík en í ýmsum nágrannasveitarfélögum.
Meirihlutinn lagði jafnframt til að borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar greiði framvegis 1.900 krónur fyrir máltíðir í mötuneytum Ráðhúss Reykjavíkur og Höfðatorgs. Þeir greiða nú 974 krónur og nemur hækkunin því um 95 prósentum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir