Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Steinunn Ólína stýrir ráðstefnu um kannabis: „Plantan er hrein snilld og gjöf til fólksins”

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir Mynd: Facebook

„Þađ er löngu kom­inn tími til ađ viđ end­ur­hugsum þetta og leyfum full­orđnu fólki ađ ráđa því svo­lítiđ sjálft hvernig þađ linar sínar þján­ingar,” segir Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, leik­kona og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóđandi, í nýjasta þætti Hamp­kasts­ins, umræđu­þætti Hamp­fé­lags­ins, en Steinunn Ólína mun í næsta mán­uđi stýra tveggja daga ráđ­stefnu, Hampur til fram­tíđar, sem haldin verđur í Salnum í Kópavogi. Hún hefur sjálf reynslu af notkun lyfja­hamps í gegnum mann sinn, Stefán Karl Stef­áns­son, sem háđi hetju­lega bar­áttu viđ krabba­mein en laut í lægra haldi áriđ 2018.

Steinunn Ólína seg­ist mik­inn áhuga hafa á kanna­bis­plönt­unni og sé því ákaf­lega spennt fyrir ráđ­stefn­unni enda muni þar stíga á stokk þunga­vigt­ar­fólk í iđnađinum og fjalla ann­ars vegar um iđnađ­ar­hamp og hins vegar lyfja­hamp. Hún segir sér­stak­lega áhuga­vert ađ fara muni fram umræđa um áhrif CBD og THC á lík­ams­starf­semi kvenna, bæđi á tíđa­hring­inn og horm­óna­kerfiđ. „Lyfja­iđnađ­ur­inn hefur reynt ađ fletja út geđslag kvenna í stađ þess ađ konur læri ađ vinna međ þá ofur­krafta sem horm­óna­kerfiđ okkar er. Ég held ađ kanna­bis eigi eftir ađ koma mjög sterkt inn sem lyf fyrir konur.” Hún vísar til þess ađ í frum­byggja­menn­ingu víđa sé plantan álitin kvenna­planta og hafi veriđ notuđ til ađ lina þján­ingar kvenna í fæđingu og viđ slæmum tíđa­verkjum. Hún von­ast til þess ađ heil­brigđis­ráđherra og starfs­fólk úr heil­brigđis­geir­anum sjái sér fært ađ mæta enda orđiđ mjög útbreitt ađ fólk noti lyfja­hamp í lækn­inga­skyni á ólög­legan hátt. „Sjálf þekki ég margt fólk sem þarf ađ fara afdala­leiđir til þess ađ nota CBD međ THC í lækn­inga­skyni en þađ fær međ því bestu bót­ina og þetta er ótækt. […] Plantan er hrein snilld og gjöf til fólks­ins á jörđinni međ alla sína eig­in­leika. Ég vona ađ þađ sé ekki langt ađ líđa þar til lyfja­hampur verđur lög­legur undir ein­hvers konar eft­ir­liti.”

Hefđi getađ svæft allan Vest­ur­bæ­inn

Sjálf notar Steinunn Ólína ekki kanna­bis, seg­ist hafa gert heiđ­ar­lega til­raun sem ung­lingur til ađ ger­ast hass­haus en ekki međ góđum árangri. „Mér fannst víman aldrei þægi­leg en ég reykti međ öđrum til ađ prófa. Þetta var aldrei mitt vímu­efni. Ég lagđist aftur á móti í brenni­víniđ af mik­illi hörku,” segir hún og bætir viđ ađ hún sé löngu hætt ađ drekka áfengi. En þrátt fyrir ađ kanna­bis hafi ekki heillađ hana hefur Steinunn Ólína góđa reynslu af notkun kanna­bis því ađ eig­in­mađur hennar, Stefán Karl, greind­ist međ krabba­mein áriđ 2016. „Þađ var í raun fyrir til­viljun ađ hann fór ađ nota kanna­bis til ađ lina sínar þján­ingar. Þađ kom þannig til ađ ýmsir rækt­endur í Reykja­vík fóru ađ færa honum olíu, svona hreina RSO, Rick Simpson olíu, og á tíma­bili barst okkur svo mikiđ magn af gjöfum ađ viđ hefđum lík­lega getađ svæft allan Vest­ur­bæ­inn ef ekki stór-Reykja­vík­ur­svæđiđ. Og þá sá ég hvađ þetta lyf reynd­ist honum vel.”

Steinunn Ólína segir ađ þeim hafi veriđ ful­ljóst ađ lyfja­hamp­ur­inn myndi ekki lækna hann af krabba­meini en hafi engu ađ síđur reynst Stefáni Karli betur en ýmis önnur lyf. „Seinna áriđ þegar þađ var orđiđ erfitt fyrir hann ađ halda holdum og halda niđri mat, því ađ þađ var mikil ógleđi sam­hliđa lyfja­međ­ferđunum og af þeim lyfjum sem hann vegna veik­inda sinna varđ ađ taka, þá kom kanna­bis sterkt inn því ađ þađ sló áber­andi og miklu betur á ógleđi en öll ógleđi­lyfin og þađ virt­ist einnig gefa honum lík­am­lega betri ró auk þess ađ þađ varđ til þess ađ hann hélt holdum. Kannabis er þekkt fyrir þađ ađ fólk verđur sól­giđ í eitt­hvađ mat­ar­kyns og hann var engin und­an­tekn­ing þar. Hann gat þrælađ í sig ís á kvöldin og hélt því holdum miklu lengur, því ann­ars var þađ honum mikil raun ađ setja eitt­hvađ ofan i sig. Þađ var mikiđ inn­grip inn í hans melt­ing­ar­starf­semi og kanna­bis gerđi þađ ađ verkum ađ hann hafđi meiri mat­ar­lyst.”

Ađspurđ segir hún ađ Stefán Karl hafi engin nei­kvæđ viđbrögđ fengiđ viđ því frá læknum eđa úti í sam­fé­lag­inu ađ nota kanna­bis enda sé ekki litiđ svo nei­kvætt á þađ þegar í hlut eiga sjúk­lingar sem virki­lega þurfa á lyfja­hampi ađ halda. „Mörgum dugar CBD en ađrir þurfa THC og ég þekki fólk sem þjáđst hefur af krónískum ristil­bólgum til dæmis og þar verđur THC ađ vera međ til ađ minnka bólgur og lina þján­ingar. Þađ er í raun fárán­legt ađ hafa fólk á lyfjum sem veita ekki sömu líkn.”

Kannabisplantan verđi lögleg á Íslandi

Alþjóð­lega ráð­stefnan Hampur til fram­tíðar (e. Hemp for the Future) fer fram dag­ana 11. og 12. októ­ber næst­kom­andi í Salnum í Kópavogi. Þar leiða saman hesta sína fjöl­margir virtir sér­fræð­ingar, bæði íslenskir og erlendir, og fjalla um nýj­ustu vend­ingar þegar kemur að  iðn­að­ar­hampi og land­bún­aði ann­ars vegar og lyfja­hampi hins vegar. Ráð­stefnan er ein­stakt tæki­færi til að fræð­ast, mynda tengsl við áhrifa­fólk í iðn­að­inum og fá inn­sýn inn í það sem er að ger­ast og mun ger­ast í mál­efnum iðn­að­ar­hamps og lyfja­hamps í heim­inum og á Íslandi. 

Ráð­stefn­unni verður skipt niður á tvo daga, hvor með sínu umræðu­efni. Á fyrri deg­inum verður fjallað um iðn­að­ar­hamp frá öllum hliðum, til dæmis um þróun og nýj­ungar, sjálf­bærni í ræktun og mögu­leika á vöru­þróun. Síðari dag­ur­inn verður helg­aður lyfja­hampi og verður sér­stak­lega horft til þeirra rann­sókna sem staðið hafa yfir und­an­farin ár og standa enn. Farið verður yfir laga­legt umhverfi og fjallað um áhrif laga­breyt­inga á sam­fé­lagið í heild.

Mark­miðið með ráð­stefn­unni í októ­ber er að halda á lofti umræð­unni um þau tæki­færi sem fel­ast fyrir Ísland í bæði iðn­aðar- og lyfja­hampi og tengja saman hags­muna­að­ila á borð við lög­gjafa- og fram­kvæmda­valdið, heil­brigð­is­starfs­fólk, háskóla­fólk, fag­fólk í iðn­að­inum og áhuga­fólk um mál­efni hamps­ins. Það er von Hamp­fé­lags­ins að með fræðslu verði hægt að ná settu mark­miði félags­ins, þ.e. að tryggja að kanna­bis­plantan, og allar afurðir hennar, verði lög­leg á Íslandi.

Miđasala fer fram á vefnum tix.is og í gegnum heima­síđu ráđ­stefn­unnar hemp4fut­ure.is.

Viđtaliđ viđ Stein­unni Ólínu má sjá í heild sinni í spil­ar­anum hér ađ neđan. Hamp­kasatiđ má finna á öllum helstu streym­isveitum eins og Spotify.

Gunnar Dan Wiium, stjórn­ar­mađur í Hamp­fé­lag­inu, tók viđtaliđ, Mickael Lakhlifi sá um tækni­mál og Andri Karel um texta­skrif. Heima­síđa Hamp­fé­lags­ins er hamp­felagid.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Lögregla rannsakar einnig tilkynningu um líkamsárás í miðborginni.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir