Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Óhugnanleg framtíð eldri borgara: „Hún lifði ekki nema sex mánuði“

Hlín Agnarsdóttir Mynd / Hallur Karlsson
Hlín Agn­ars­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Hlín Agn­ars­dóttir var að senda frá sér skáld­sög­una Hildu­leik þar sem hún skapar óhugn­an­lega fram­tíð fyrir eldri borg­ara lands­ins, sem sviptir eru nán­ast öllum rétt­indum þegar þeir ná ákveðnum aldri. Hlín segir sögu­efnið hafa komið til sín eftir dauða móður sinnar sem lést eftir sex mán­uði á hjúkr­un­ar­heim­ili, þótt hún hefði fram að því verið ágæt­lega hress, ekki komin með elli­glöp.

Sjálf verður Hlín sex­tíu og sjö ára í nóv­em­ber en hefur engin áform um að draga saman seglin þótt hún kom­ist á aflif­un­ar­aldur, eins og hún kallar það í bók­inni, langar í meira nám, ætlar að skrifa fleiri bækur og njóta þess að vera sam­vistum við mann­inn sem hún fann aftur eftir sextán ár. Hún er rétt að byrja.

„Það hefur lítið verið skrifað um þetta efni áður,“ segir Hlín spurð hvaðan hug­myndin að efni bók­ar­innar hafi sprottið. „Ég er að velta því fyrir mér hvernig þjóð­fé­lagið gæti hugs­an­lega orðið þegar okkur sem komin erum á aflif­un­ar­ald­ur­inn fer að fjölga. Hug­myndin kvikn­aði þegar mamma mín dó fyrir þremur árum síðan. Í fyrsta lagi var það algjör martröð fyrir okkur systk­inin að fá það sem heitir vist­un­ar­mat fyrir hana, það er þegar verið er að sækja um vistun fyrir aldr­aða ætt­ingja á þessum svoköll­uðu hjúkr­un­ar­heim­ilum. Mamma var átta­tíu og sjö ára, ekki mikið veik en gat ekki lengur alveg séð um sig sjálf, þannig að við vildum gjarnan koma henni inn á hjúkr­un­ar­heim­ili eftir að hún var útskrifuð af spít­ala eftir mjaðm­ar­brot. Í fyrstu voru engin úrræði og svo loks­ins þegar úrræðið kom var það eitt her­bergi á Hrafn­istu. Hún lifði ekki nema sex mán­uði eftir að hún fór þar inn……“

Vikan er komin á helstu sölu­staði

Hlín er í for­síðu­við­tali í nýjasta tölu­blaði Vikunnar sem kemur í versl­anir á morgun, fimmtu­dag.

Sigurður Helgi Oddsson píanó­leik­ari stofn­aði Sveiflu­stöð­ina, þar sem hann vildi færa Íslend­ingum gleði sveiflu­tón­list­ar­innar. Í við­tali við Vikuna segir hann að dans­inn, eins og tón­listin, talar til okkar allra.

Halla Oddný Magn­ús­dóttir, við­burða- og skipu­lags­stjóri hjá Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands er önnum kafin að und­ir­búa við­burði vetr­ar­ins. Hún hefur þó ekki lagt sjón­varps­vinn­una á hill­una, en sjón­varps­þættir hennar og menn­ing­ar­við­töl hafa vakið athygli og aðdáun.

Guðjón Birgir Jóhanns­son, úti­bús­stjóri Securitas á Aust­ur­landi er undir smá­sjánni. Hann seg­ist sjaldn­ast geta stað­ist góð tæki­færi, þau séu alls staðar.

Embla Wigum er ung að árum, en hefur vakið verð­skuld­aða athygli á sam­fé­lags­miðlum fyrir fantasíu­farð­anir sínar. Hún getur breytt sér í hvað og hvern sem er með förð­un­ar­burst­unum.

Í Vikunni má einnig finna umfjöllun um tísku, heilsu, heim­ili og hönnun, auk þess sem kross­gátan, orða­leit og stjörnu­spá Vikunnar eru á sínum stað. Í Lífs­reynslu­sögu Vikunnar segir kona frá óhappi bróður hennar, sem hafði svo miklar afleið­ingar að það breytti öllu lífi hans og fjöl­skyld­unnar.

Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í vef­verslun okkar.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun >

Texti / Friðrika Ben­ón­ýs­dóttir
Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Náttúruleg líkamslykt getur tengst nánd og góðum minningum, en segir ekki til um hvort samband muni endast.

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu