Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Sonur Hildar verður fyrir gegndarlausu einelti á Akureyri

„Við erum bæði brotin, sár og reið“

Hildur Friðriks, móðir 15 ára drengs í 10. bekk á Akureyri lýsir miklum áhyggjum af stöð­ugu ein­elti sem sonur hennar hefur orðið fyrir um ára­bil. Í opin­skárri Facebook-færslu segir hún dreng­ur­inn hafa list­ræna hæfi­leika, mik­inn sköp­un­ar­kraft og áhuga á leik­list, tón­list og mynd­list, en á sama tíma glími hann við ADHD, mis­þroska, mál­þroska­röskun, mót­þróa­þrjóskuröskun og ógreindan gena­galla.

Dreng­ur­inn, sem heitir Erik, hefur unnið að tón­list, stutt­myndum og teikni­mynda­sögum og dreymir um að eign­ast vini. Samkvæmt móð­ur­inni hefur það reynst erfitt vegna þess að hann á í erf­ið­leikum með félags­leg sam­skipti og túlkun þeirra.

Í færsl­unni segir móðir hans að hann hafi orðið fyrir bæði and­legu og lík­am­legu ofbeldi og þurft að þola móðg­anir, hót­anir og sár orð á sam­fé­lags­miðlum. Sum skila­boð hafi verið svo alvar­leg að hann hafi hringt í neyð­ar­lín­una.

„Hann hefur lent i alls­konar árásum lík­am­lega og and­lega, ég hef þurft að taka af honum sam­skipta­miðla sem ég fylgist með og sím­ann, vegna ógeðs­legra skila­boða sem hafa hrætt hann það mikið að hann hefur hringt i neyð­ar­lín­una.“

Erik byrj­aði í nýjum skóla í haust sem móð­irin segir að mæti honum betur en fyrri skól­inn. Þrátt fyrir það hafi ein­eltið haldið áfram og að krakk­arnir fundið nýjar leiðir til að beita hann sál­rænu ofbeldi. Drengnum hafi meðal ann­ars verið sagt að „hverfa“, „drepa sig“, að eng­inn vilji vera vinur hans og að hann „ætti ekki heima hér“. Einnig hafi honum verið strítt fyrir að leika við yngri frændsystk­ini og kall­aður „barna­perri“ vegna þess .

Móðirin segir að krakkar hafi jafn­vel blekkt hann til að mæta á opin hús og böll í þeim til­gangi að gera grín að honum. Hann hafi alltaf komið heim eftir örfáar mín­útur og þorir nú ekki lengur að taka þátt.

„Hvað er næsta skref hjá móður og barni sem hafa barist fyrir hans til­veru­rétt?? Get sagt það að við bæði erum brotin, sár og reið, hvað næst? Ég mun halda áfram að styrkja son minn og vona að sam­fé­lag af okkar ung­mennum muni verða betri i að virða fjöl­breyti­leika, for­eldrar talið við börnin ykkar. Kveðja mjög svo búin sár móðir “ skrifar Hildur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu