Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Hefðarfólk á hjólum styrkir krabbameinsrannsóknir: „Við erum ekki leðurklædd vélmenni“

The Dist­ingu­is­hed Gentlem­ans Ride eða DGR (ísl: Hefð­ar­fólk á Hjólum) fer fram í Reykja­vík laug­ar­dag­inn 25. maí í sjö­unda sinn á Íslandi. DGR er alþjóð­legur við­burður þar sem mót­or­hjóla­fólk kemur saman, snyrti­lega klætt, á klass­ískum mót­or­hjólum og mót­or­hjólum í klass­ískum stíl til að vekja athygli á heilsu karl­manna, þá sér­stak­lega geð­heilsu og krabba­meini í blöðru­háls­kirtli, og um leið safna áheitum sem renna til rann­sókna á þessum mál­efnum á heims­vísu.

María Guðrún Sveins­dóttir er versl­un­ar­stjóri tísku­vöru­versl­un­ar­inar Companys í Kringl­unni og hún er ein af fáum konum sem hefur tekið þá í Dist­ingu­is­hed Gentlem­ans ride á hverju ári.

„Hver vill ekki styrkja rann­sóknum á krabba­meini hjá körlum og bætt­ari geð­heilsu“ segir María bros­andi og heldur áfram:

„Þar veitir þeim ekki af smá stuðn­ingi. En fyrir mig er þátt­taka í DGR líka að beina athygli að mót­or­hjóla­menn­ingu og mót­or­hjóla­fólki í umferð­inni. Í DGR fer maður úr hefð­bundna örygg­is­gall­anum og í snyrti­leg fín föt, og fyrir utan hvað það er gaman að fórna sér fyrir mál­stað­inn og frjósa úr kulda einn lít­inn hring um Reykja­vík, þá finnst mér DGR líka sýna hvað fjöl­breyti­leiki mót­or­hóla­fólks á Íslandi er mik­ill og að við erum ekki leð­ur­klædd vél­menni“ segir hún og bætir við:

„Venju­lega á mót­or­hólum er fólk dálítið and­lits­laust með lok­aðan hjálm. En við erum fólk sem notar mót­or­hjól sem far­ar­tæki og við erum við­kvæm­ari í umferð­inni en fólk á öðrum far­ar­tækjum; við erum ekki með velti­grind – loft­púða og örygg­is­belti, og það þarf lítið til að illa fari.“

María bætir því við að hún sé „búin að vera á mót­or­hjóli í nokkur ár og ég upp­lifi tölu­vert meiri dóna­skap og að minni virð­ing sé bor­inn fyrir mér í umferð­inni á mót­or­hjóli en þegar ég er á bíl. Á mót­or­hjóli tekst maður á við veður og vind ásamt því að vera í umferð­inni. Þannig er ég meira með­vituð og skynja um leið og bíl­stjóri nálægt mér er ekki með fulla athygli á akstr­inum. Bíl­stjórar þurfa kannski ekki að vera eins vak­andi en þá er líka skrítið af hverju það er meira flautað á mig, keyrt í veg fyrir mig og jafn­vel ekki skipt um akrein til að taka fram úr. Það má alveg biðla til bíl­stjóra að sýna okkur mót­or­hjóla­fólki meiri nær­gætni.“

Að lokum nefnir María að hún vilji fá fleiri konur með í hóp­inn:

„Mig langar að biðla til mót­or­hjóla­kvenna að koma og vera með okkur á næsta DGR sem verður á morgun; þá endum við í Hjarta­garð­inum um klukkan tvö, og þeir sem vilja geta komið og skoðað flott mót­or­hjól og prúð­búið mót­or­hjóla­fólk.“

Hægt er að skoða mynd­bönd á Tiktok eða Youtube frá DGR í öðrum löndum og sjá stemn­ing­una og stíl­inn á lið­inu.

Hér er hægt að finna allar upp­lýs­ingar á facebook

https://www.facebook.com/hefdarfolkahjolum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027