Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Í fréttum var þetta helst – Birgir liðhlaupi, byrlun á B5 og kraftaverk Guðmundar Felix

Guðmundur Felix Grétarsson
Guð­mundur Felix Grét­ars­son

Í fréttum var þetta helst

Sigmundur gefur lítið fyrir skýringar Birgis: „Við erum ekki að fara að elta hann út í þetta fen“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir skýringu Birgis Þórarins­sonar um að liðhlaup hans úr þing­flokki Miðflokksins megi rekja til Klausturs­málsins „þriggja ára gamla eftirá­skýringu sem haldi ekki alveg vatni.“

Sigmundur er ekki einn um þá skoðun, enda hafa ýmsir, bæði úr þingheimi og utan hans, talið það hæpið að ætla að skella skuldinni á Klausturs­málið, eftir að hafa í heil þrjú ár í kjölfar þess setið sem fastast í flokknum.

Sigmundur segir að á þessum þremur árum sem liðin séu hafi Birgi verið treyst fyrir hinum ýmsu hlut­verkum innan flokksins. Eftir fund stjórnar Miðflokksins í gær sagði Sigmundur í samtali við mbl.is að vista­skipti Birgis væru vonbrigði.

Hann telur þó ákvörðun Birgis fyrst og fremst ranga gagnvart því fólki sem unnið hafi hörðum höndum að því að koma honum á þing í Suður­kjördæmi. Það hafi tekist með átta atkvæðum.

Sigmundur segir ákvörðunina vissulega hafa komið á óvart. Hann hafi þó verið varaður við því af fleirum en einum að Birgir myndi fara í bólið með Sjálfstæðis­flokknum.

Sigmundur segist hafa neitað að trúa því. Birgir hafi heitið fólkinu í kjör­dæminu því að hann yrði með Miðflokknum og hafi auk þess lagt mikið á sig til að verða valinn oddviti í kjör­dæminu.

Öll fréttin: Sigmundur gefur lítið fyrir skýringar Birgis: „Við erum ekki að fara að elta hann út í þetta fen.“

Erna fylgir ekki Birgi – Jón Steinar segir Sjálfstæðis­flokkinn siðlausan

Erna Bjarna­dóttir hefur greint frá því að hún ætli ekki að fylgja Birgi Þórarins­syni yfir í Sjálfstæðis­flokkinn.

Birgir sagði skilið við Miðflokkinn á dögunum, og sagði þá ákvörðun hafa átt langan aðdrag­anda. Loks hafi hann ákveðið að færa sig yfir um flokk en ákvörðunin byggist meðal annars á Klausturs­málinu um árið.
Í yfir­lýsingu Birgis um helgina gaf hann í skyn að Erna myndi fylgja honum yfir í Sjálfstæðis­flokkinn.
Erna sagði það ekki ætlun sína í viðtali á Bylgjunni í morgun.

„Ég hef ekki skráð mig í Sjálfstæðis­flokkinn og er ekki á leiðinni þangað,“ sagði Erna í Bítinu í morgun.

Þá sagði Erna að rætt hafi verið við hana um að skipta yfir í Sjálfstæðis­flokkinn en vildi hún ekki gefa upp hverjir það voru.
Auk þess hafi Birgir sagt henni að upplifun hans væri sú að unnið væri gegn honum innan Miðflokksins.

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifaði um málið í Morgun­blaðinu í dag og ber pistillinn titilinn „Stuðningur við siðleysi“.
Jón Steinar nefnir Birgi ekki á nafn en segir að hann hafi boðið sig fram undir fölsku flaggi.
„Hann var einfald­lega að svindla á kjósendum,“ skrifar Jón Steinar og bætir við að Birgir hafi kosið yfir sig flokk sem hann yfirgaf strax að kjöri loknu. Ástæðurnar hafi þó legið fyrir áður en kosningar fóru fram.

Þá spyr hann hvers vegna Sjálfstæðis­flokkurinn taki þátt í þessari háttsemi Birgis.

Mikilvæg skilaboð Elmu eftir skemmtun á B5: „Augun voru alltaf að rúlla aftur á
bak“

Á Twitter í dag má finna mikilvæga færslu Elmu um byrlun. Færsluna skrifar hún sem aðstandandi stúlku sem lenti í því að vera byrlað ólyfjan á skemmtistað.

Elma segir frá því að vinkonurnar hafi verið að skemmta sér á B5, sem nú heitir reyndar Banka­stræti Club, þegar atvikið átti sér stað.

„Ég sem ung stelpa vissi ekkert hvernig ég ætti að hjálpa henni,“ segir Elma.

Elma vill, í ljósi reynslu sinnar, að annað ungt fólk geri sér grein fyrir þeim einkennum sem fylgja byrlun svokallaðra „nauðgunar­lyfja“ og hvað sé best að gera ef slíkar aðstæður koma upp. Elma segir að um það bil hálftíma eftir að vinkona hennar hafi drukkið skotið með efninu í hafi hún orðið mjög völt og litið út fyrir að vera orðin verulega ölvuð.

„Hún var við það að sofna og gat varla haldið sér standandi. Augun voru alltaf að rúlla aftur á bak og hún átti erfitt með að halda athygli á mér og annarri viðstaddri vinkonu. Hún fann fyrir mikilli ógleði og vissi alls ekki hvað var að koma fyrir sig. Við vissum að hún væri ekki orðin svona full og áttuðum okkur sem betur fer fljótt á aðstæðum.“ Elma segir að þær hafi farið með vinkonu sína á bráða­móttökuna, en þar hafi lítið verið að gert og stúlkunni einfald­lega bent á að fara heim og sofa úr sér.

„Það voru engin test tekin til að finna út hvaða efni var notað og við vitum það ekki ennþá,“ segir Elma. Elma tekur fram að sá sem setti lyf út í drykk vinkonu hennar hafi ekki verið ókunnugur maður, heldur kunningi. „Okkur er alltaf sagt að taka ekki drykki frá ókunnugu fólki en í þessum aðstæðum var það ekki málið.

Ef þið ætlið að þiggja drykki frá einstaklingi, plís farið með þeim upp að barnum og takið sjálf við drykknum frá barþjóninum.“ Elma biðlar til fólks að skilja vini sína og vinkonur aldrei eftir ein. „Ef þið sjáið mjög snögga breytingu á hegðun, takið einstaklinginn inn á bað og tékkið hvort einhver af ofan­töldum einkennum séu til staðar.

Ef svo er, fáið hjálp frá dyraverði. Látið hann fylgja ykkur út og komið ykkur heim eða á slysó,“ segir Elma að lokum.

Guðmundur heldur áfram á ótrúlegu bataferli sínu: „Þetta átti ekki að gerast fyrr en eftir tvö ár“

Guðmundur Felix Grétarsson, sem fyrstur manna gekkst undir handa­ágræðslu á báðum hand­leggjum, síðastliðinn janúar, birti stórkostlegt myndband á Instagram-reikningi sínum í morgun.

Guðmundur gekkst undir aðgerðina í Lyon í Frakk­landi fyrir 9 mánuðum. Batinn hefur verið undraverður og á undan áætlun. Í mynd­bandinu sýnir Guðmundur það nýjasta í bata­ferlinu.

„Nú eru liðnir 9 mánuðir frá því að ég fékk hand­leggina og vildi ég gera myndband og segja frá nýjustu þróuninni í ferlinu. Fyrir ykkur sem sáuð mynd­bandið í maí, að ég held 28. maí, þá gat ég lítillega hreyft tvíhöfðann,“ segir Guðmundur í mynd­bandinu og hreyfir tvíhöfðann. „En nú get ég gert talsvert meira. Tvíhöfðinn virkar nokkuð vel og svo eykst styrkurinn í öxlunum, tvíhöfðanum og þríhöfðanum með hverjum deginum sem líður.“ Þá segist hann finna fyrir kulda og snertingu í hægri hand­leggnum, sé þrýst vel á hann.

Svo hlakkar í Guðmundi Felix og hann segir að nýjasta þróunin sé nokkuð merkileg. „Nú get ég hreyft fingurna lítillega, en þetta átti ekki að geta gerst fyrr en eftir tvö ár.“ Því næst gerir hann smá tilraun, tekur upp mandarínubát með hægri hönd og setur upp í sig.

Öll fréttin: Guðmundur heldur áfram á ótrúlegu bataferli sínu: „Þetta átti ekki að gerast fyrr en eftir tvö ár“

Ófremdar­ástand í Sælukoti og starfs­menn endast aðeins nokkra mánuði: „Búið að vera svona í mörg ár“

„Starfs­menn endast oftast þarna í nokkra mánuði og þetta er búið að vera svona í mörg ár,“ sagði fyrr­verandi starfs­maður leik­skólans Sælukots í viðtali við Mannlíf.

Mannlíf ræddi við fyrr­verandi starfs­mann leik­skólans, sá starfs­maður hefur óskað nafn­leyndar í tengslum við málið.
Móðir barns sem var í leik­skólanum hafði sagt frá reynslu sinni af leik­skólanum eftir að grunur kom upp um að starfs­maður leik­skólans hefði brotið á barni hennar.
Þá taldi móðirin leik­skólann hafa brugðist en trúnaðar­skýrslur barna­verndar voru sýndar á fundi með foreldra­ráði.

Mannlíf greindi frá því í gær að starfs­maðurinn hefði sagt starfi sínu við Sælukot lausu og í kjölfarið herjað á borgina í von um að leik­skólinn yrði skoðaður.

Starfs­maðurinn segir þá í viðtalinu að hann og fleiri fyrr­verandi starfs­menn leik­skólans hafi rætt saman og borið saman bækur sínar. Þá telur starfs­maðurinn leik­skólann ekki uppfylla nægilega vel kröfur til þess að halda starfseminni gangandi, en meðal annars hafi verið allt of mörg börn á hvern starfs­mann.

Þá efast starfs­maðurinn um örvun málþroska barna við leik­skólann en hann er gríðar­lega mikil­vægur þáttur.

„Hver er tungumála­krafa borgarinnar varðandi leikskóla, rekstrar­aðili talar ekki íslensku og enska er ekki heldur hennar móðurmál og öll samskipti eru mjög flókin.“

Öll fréttin: Ófremdar­ástand í Sælukoti og starfs­menn endast aðeins nokkra mánuði: „Búið að vera svona í mörg ár“

Önnur móðir lýsir ófremdar­ástandi á Sælukoti. Tveggja ára börn ein og án eftirlits í lokuðu rými


Mannlífi hafa borist ábendingar er varða leik­skólann Sælukot og virðist frásögnunum ekki ætla að linna. Óvíst er hvernig Reykja­víkurborg hafi tekið á málinu að svo stöddu en ljóst er að tilkynningarnar eru orðnar margar.

Í gær sagði önnur móðir reynslu sína af leik­skólanum, en í síðasta mánuði hafði móðir stigið fram og sagt sína reynslu. Grunur lék á að barn konunnar hefði orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manns. Þá ræddi Mannlíf einnig við leik­skólann vegna málsins sem kvaðst hafa sýnt foreldra­ráði trúnaðar­gögn frá Barna­vernd.

Móðirin segir að hún hafi byrjað að hafa áhyggjur af málþroska barnsins en barninu fór aftur í tali eftir að það byrjaði á leik­skólanum.

„Hún kunni að telja og kunni liti, svo fór hún að rugla öllu saman þegar leik­skólinn byrjaði. Þegar við vorum að telja sagði hún þá einn, og svo two, three, four.“

Þá segir móðirin að hún hafi spurt út í þetta, og sent tölvupóst. En hún velti því líka fyrir sér hvort nógu margir íslensku­mælandi væru við leik­skólann, enda mikilvægt fyrir málörvun barnanna. Móðirin segir svarið frá leik­skólanum ekki eiga við rök að styðjast. Henni hafi verið tilkynnt að mikil íslenska væri töluð við leik­skólann.

„Það væru bara tveir starfs­menn sem töluðu ekki íslensku, sem er bara bull því það voru að minnsta kosti fjórir. Og samkvæmt því þá væru tíu starfs­menn á leik­skólanum,“ segir móðirin og bætti við að það gæti hreinlega ekki staðist vegna fjölda barna við leik­skólann.

Öll fréttin: Önnur móðir lýsir ófremdar­ástandi á Sælukoti. Tveggja ára börn ein og án eftirlits í lokuðu rými

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli