Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Egill segir heimildarmynd afhjúpa afmennskun ísraelska hersins á Gaza

Egill rifjar upp skil­grein­ingu Benja­mins Net­anyahu á hryðju­verkum og segir hana eiga við um fram­ferði Ísraels sem hann lýsir í grein sinni.

Aðstandendur myndarinnar
Aðstand­endur mynd­ar­innar Leik­stjór­arnir Yuval Abraham og Rachel Szor á kvik­mynda­há­tíð­inni í Feneyjum með verð­laun fyrir heim­ild­ar­mynd­ina NAZA. Mynd: TIZIANA FABI / AFP

Egill Ein­ars­son efna­verk­fræð­ingur segir nýja heim­ild­ar­mynd um Gaza-stríðið varpa óhugn­an­legu ljósi á aðferðir ísra­elska hers­ins við að velja skot­mörk og skipu­leggja árásir á almenna borg­ara með aðstoð gervi­greindar.

Í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu fjallar Egill um heim­ild­ar­mynd­ina NAZA, þar sem tekin eru við­töl við ísra­elska her­menn sem koma að skipu­lagn­ingu loft­árása og dróna­árása á Gaza. Við­mæl­end­urnir eru ekki nafn­greindir og and­lit þeirra hulin.

Samkvæmt frá­sögnum þeirra eru upp­lýs­ingar úr síma­sam­skiptum íbúa Gaza nýttar til að finna meint tengsl við Hamas og velja skot­mörk. Einn við­mæl­andi lýsir starf­inu sem tækni­legu verk­efni fremur en póli­tísku eða sið­ferði­legu álita­efni.

Hann var meðal ann­ars spurður hvort honum hefði reynst erfitt að horfa á afleið­ingar árásar á fjöl­skyldu eftir að hafa fylgst með tveimur ungum stúlkum, þriggja og sex ára, í gegnum síma þeirra.

„Nei“, hafi hann svarað og útskýrt að verk­efnið sner­ist fyrst og fremst um tækni.

Í grein Egils er einnig haft eftir við­mæl­anda að í einni árás hafi um 500 manns látið lífið, en aðeins einn þeirra verið Hamas-liði. Þá hafi verið sagt að allir íbúar Gaza væru skil­greindir sem hryðju­verka­menn þar sem börnin gætu orðið hryðju­verka­menn í fram­tíð­inni.

Egill fjallar jafn­framt um frá­sagnir af skotárásum á fólk sem leit­aði sér matar en leyniskyttur stund­uðu það að skjóta fólk sem yfir­gaf raðir við mat­ar­út­hlut­anir en allt að tíu manns féllu á dag. Mannlíf hefur áður fjallað um málið.

Þá segir Egill frá svo­kall­aðri grænni línu sem Ísraelar hafi markað inni á Gaza án þess að upp­lýsa Palest­ínu­menn um hana. Einn við­mæl­andi lýsir því að hafa séð lít­inn dreng fara yfir lín­una og verið sprengdan í tætlur.

Egill segir frá­sagn­irnar sýna hversu langt afmennskun palest­ínskra íbúa geti gengið. Hann rifjar einnig upp ummæli Benja­mins Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, úr sjón­varps­við­tali þar sem hann skil­greindi hryðju­verk sem árásir á almenna borg­ara án til­lits til kyns, ald­urs eða fötl­unar. Egill segir Net­anyahu með þeirri skil­grein­ingu hafa hitt sjálfan sig fyrir.

„Segja má að hann hafi hitt sjálfan sig með búm­er­ang með þess­ari setn­ingu.“

Í lok grein­ar­innar gagn­rýnir Egill vest­ræn stjórn­völd fyrir að hafa horft fram hjá fram­ferði Ísraela. Hann telur að þegar við­horf til stríðs­ins breyt­ist muni leið­togar reyna að kom­ast hjá ábyrgð á fyrra aðgerða­leysi og kepp­ast við að for­dæma það sem þeir hafi áður látið við­gang­ast.

Hann kallar eftir nýjum tímum þar sem mannúð og mennska fái að njóta sín og þjóðir heims taki höndum saman til að koma í veg fyrir að sam­bæri­legir atburðir end­ur­taki sig.

Hin marg­verð­laun­aða heim­ild­ar­mynd NAZA er í sýn­ingum hjá Bíó Paradís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu