Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Verkefnastjórinn Josie sofnaði undir stýri

Hefur búið á Íslandi und­an­farin fjögur ár

Josie Anne Gaitens
Josie Anne Gaitens Fylgjst mikið með svefn­inum Mynd: Aðsend

Josie Anne Gaitens er verk­efna­stjóri sem starfar í lista­geir­anum á Íslandi en hún hefur búið á Íslandi und­an­farin fjögur ár en hún kemur frá Skotlandi. Hún er nýjasti gestur hlað­varps­ins Sofum saman.

Í þætt­inum ræðir Josie um þá erf­ið­leika sem hún hefur glímt við varð­andi svefn en hún átti lengi erfitt með að sætta sig við að hún hryti. Þá hafa fyrrum kærastar sagt við hana að hún hrein­lega hætti að anda í svefni.

„Starfið mitt er mjög krefj­andi og felur oft í sér mikla næt­ur­vinnu og óhefð­bund­inn vinnu­tíma,“ segir Josie meðal ann­ars í þætt­inum. „Það hefur alltaf hentað mér vel. Ég gat sofið hvenær sem ég þurfti og mér fannst líka í lagi að vera vak­andi nán­ast allan sól­ar­hring­inn. Mér fannst ég aldrei þurfa mik­inn svefn. Núna geri ég mér grein fyrir því að ég svaf í raun aldrei vel út af því að ég var með kæfisvefn. Líkaminn ein­fald­lega aðlag­að­ist litlum svefni,“ en hún er 34 ára gömul og lifir heil­brigðum lífstíl að öðru leyti.

Leitaði til læknis

Í þætt­inum greinir Josie að hún hafi leitað til læknis vegna máls­ins og var meðal ann­ars spurð hvort hún hafi sofnað undir stýri.

„Já, það hefur gerst,“ sagði verk­efna­stjór­inn í þætt­inum. „Það gerð­ist bara einu sinni, bara í örstutta stund. En þetta sýnir bara hversu mikil áhrif þetta hefur, að þetta getur valdið því að maður sofni jafn­vel í aðstæðum sem eru mjög hættu­legar. Þegar ég sagði að ég hefði sofnað undir stýri breytt­ist allt því að þá var ég aug­ljós­lega ekki bara að setja mig í hættu heldur einnig líf ann­ara. Þá var allt sett í gang og ég var send heim með tæki til að mæla svefn­inn.“

Hún heyrði þó ekk­ert lengi frá neinum varð­andi málið eftir þetta. „Þetta var orðið eitt af þessum málum sem eru alltaf á bak við eyrað. Og auð­vitað þarf maður að borga fyrir þetta á Íslandi. Ég hélt jafn­vel að ég þyrfti að fara aftur í gegnum þetta og borga aftur, að nið­ur­stöð­urnar hefðu týnst. Þannig liðu mán­uð­irnir. Svo fékk ég sím­tal frá lækni. Við hitt­umst ekki. Og sem betur fer var hann með allar upp­lýs­ingar um mig, BMI, aldur, þyngd og fleira. Þessi læknir hafði áttað sig á hvað var að hrjá mig. Það var samt skrýtið að eiga þetta sam­tal í síma við ein­hvern sem gat ekki séð mig. Næsta skref hjá honum var að senda mig til háls-, nef- og eyrna­læknis.“

Sorglegt ástand

Eftir að hafa rætt við ýmsa sér­fræð­inga í þessum efnum mun hún not­ast við svefn­góm og sjá hvaða áhrif það hefur á svefn­inn.

„Ég nota Apple Watch til að mæla lífs­mörk, fylgj­ast með svefn­stigum, hjartslætti og fleiru. Ég nota líka app sem heitir SnoreLab. Það tekur upp hljóð í svefni og mælir hversu hátt maður hrýtur. Maður getur hlustað á brot úr upp­tök­unum, sem er frekar vand­ræða­legt. Ég reyni að gera það ekki. Það er mjög skrýtið að hlusta á sjálfan sig eiga svona erfitt með að anda. Mér fannst það mjög erfitt. Mér líður eins og þetta sé að ger­ast fyrir ein­hvern annan, ein­hvern sem ég vil hjálpa. Það er erfitt að sætta sig við það að eitt­hvað sem ætti að vera jafn ein­falt og að anda sé ekki ein­falt fyrir mig. En í alvöru, sem ung kona, þá hef ég í raun enga hug­mynd um hvernig er að upp­lifa góðan næt­ur­svefn. Það er mjög sorg­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers