Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Tannréttingar sjaldnast pjatt: „Tannréttingastyrkurinn hefur ekki hækkað í að verða 21 ár“

Gísli Einar Árnason.
Gísli Einar Árnason. Mynd: aðsend.

„Tann­rétt­ingar eru sjaldn­ast pjatt, heldur er verið að tryggja eðli­lega stöðu og starfs­hæfni tygg­inga­fær­anna þannig að tennur end­ist sem best,“ segir Gísli Einar Árnason, tann­rétt­inga­sér­fræð­ingur. Mannlíf ræddi við hann í nýrri grein þar sem farið er ofan í saumana á tann­lækna­þjón­ustu barna hér á landi.

Greinina má í heild sinni lesa hér.

„Mjög djúpt bit getur til dæmis valdið var­an­legu sliti á tönnum – jafn­vel strax hjá ung­lingum. Mjög skakkar tennur geta valdið erf­ið­leikum við tann­hirðu og þar af leið­andi tann­holds­sjúk­dómum með tím­anum. Yfirbit getur versnað og bit dýpkað. Fram­stæði tanna gerir þær meira útsettar fyrir áverkum og fleira,“ segir Gísli Einar.

„Svo eru líka „psycho-social“-þættir sem þarf að taka til­lit til. Hvernig líður barn­inu eða ung­lingnum með tenn­urnar og brosið? Svo­leiðis þættir geta alveg flokk­ast undir „pjatt­með­ferð“ – en er það pjatt að láta barn­inu líða betur með sjálft sig?“

Gísli Einar segir að burt­séð frá því hvert vanda­málið sé fái allir þennan hefð­bundna tann­rétt­inga­styrk. Það sé þó þeim skil­yrðum háð að um sé að ræða full­orð­ins­tennur og að við­kom­andi sé yngri en 21 árs þegar með­ferð hefst. Það kerfi er því nokkuð ein­falt í sjálfu sér. „En kannski ekki sann­gjarnt vegna þess að sumir eru í tölu­vert meiri þörf en aðrir. Og sá sem er „bara að pjatt­ast“ fær jafn mik­inn styrk og sá sem virki­lega þarf á tann­rétt­inga­með­ferð að halda vegna heil­brigði tanna,“ segir hann.

„En á meðan tann­rétt­inga­styrk­ur­inn hefur ekki hækkað í að verða 21 ár, þá hefur allt annað hækkað, þar á meðal verð fyrir tann­rétt­inga­með­ferð. Þannig að þetta fer að verða hálf­hjá­kát­legt, en stendur til bóta von­andi á næstu miss­erum. Vilji hins opin­bera virð­ist að minnsta kosti vera fyrir hendi núna,“ segir Gísli Einar að lokum.

Lesa nýjasta helg­ar­blað Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu