Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Unglingur bjargaði lífi vinar síns sem féll af hjóli: „Áttaði mig ekki á alvörunni fyrr en eftir á“

Anna og sonur hennar, Elías
Anna og sonur hennar, Elías Mynd: Trausti Hafsteinsson

Litlu mun­aði að 14 ára piltur léti lífið í hjól­reiða­slysi í sept­em­ber árið 1997. Ef ekki hefði verið fyrir snar­ræði 15 ára vinar Elíasar Jóns­sonar, hefði hann lát­ist en hann fékk inn­vortis blæð­ingar eftir að hafa fallið af hjóli.

Elías var á leið í sjoppu við Álfa­skeið í Reykja­vík á hjóli sínu þegar hann féll og fékk við það slæmt högg á kvið­inn. Með herkjum komst hann heim til vinar sín, þar sem hann fékk krampakast. Vinurinn, hetjan, sem vildi ekki láta nafn síns getið, hringdi strax á sjúkra­bíl og hjúkraði Elíasi eftir bestu getu. Með þessum snöggu við­brögðum tókst vin­inum að bjarga vini sínum en hann hafði misst þrjá til fjóra lítra af blóði úr kvið­ar­hol­inu, auk þess sem miltað fór í sundur. Aðgerðin gekk vel og hlaut málið jákvæðan endi.

Hér má lesa frétt DV um málið:

15 ára piltur sýndi skjót og hár­rétt við­brögð:

Bjargaði lífi vinar síns – sem var með inn­vortis blæð­ingar eftir hjól­reiða­slys

Það mátti litlu sem engu muna að dreng­ur­inn minn hefði dáið. Ég tel að með skjótum og hár­réttum við­brögðum hafi vinur hans bjargað lífi drengs­ins. Ég er vini hans inni­lega þakk­lát fyrir. Hann stóð sig eins og hetja,“ segir Anna María Valdi­mars­dóttir, móðir Elíasar Jóns­sonar, 14 ára pilts sem var hætt kom­inn eftir reið­hjólaslys sl. fimmtu­dags­kvöld. Elías var að hjóla út í sjoppu skammt frá heim­ili sínu á Álfa­skeiði í Hafn­ar­firði þegar hann féll af hjól­inu. Hann lenti harka­lega og fékk slæmt högg á kvið­inn. Elías komst við illan leik heim til 15 ára vinar síns sem býr í næsta nágrenni.

Nálægt því að deyja

„Elías fékk fljót­lega krampakast inni hjá vini sínum, sem hringdi þegar í stað á sjúkra­bíl og hlúði að Elíasi eins vel og hann gat. Elías var síðan fluttur með sjúkra­bíl á Sjúkra­hús Reykja­víkur og þaðan í fylgd læknis á Land­spít­al­ann. Þar voru lækn­arnir við það að missa hann í lost þegar hann var sendur inn á skurð­stofu. Það kom í ljós að hann hafði misst 3-4 lítra af blóði úr kvið­ar­hol­inu auk þess sem miltað fór í sundur. Hann var í önd­un­ar­vél eftir aðgerð­ina. Læknamir segja að það hafi ekki mátt muna miklu. Elías var nálægt því að deyja,“ segir Anna María.

Er á batavegi

Hún seg­ist í fyrstu ekki hafa áttað sig á hversu alvar­lega sonur hennar slas­að­ist. „Ég held að sjúkra­liðar og læknar hafi ekki beint áttað sig á því heldur fyrr en dreng­ur­inn var að fara í lost. Þetta tók tölu­verðan tíma að kom­ast alla leið á Land­spít­al­ann þar sem hann fór í aðgerð­ina. En aðgerðin tókst vel og Elias er nú á góðum bata­vegi. Ég átt­aði mig ekki á alvör­unni fyrr en eftir á. Ég fékk sjokk þegar ég hugs­aði um hve litlu mun­aði að ég missti dreng­inn. Mér finnst mjög jákvætt og gleði­legt að vita til þess hve vel vinur hans brást við í þess­ari alvar­legu stöðu. Það er oft fjallað um ung­linga í dag á nei­kvæðum nótum en þessi piltur sýndi svo ekki verður um villst að ungt fólk í dag hefur mikla mann­kosti,“ segir Anna María. Bjarg­vætt­urin, vinur Elíasar, vildi ekki láta nafn síns getið í DV. –

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni