Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Ópíóíðafaraldur sannarlega hafinn á Íslandi – Aldrei fleiri látist úr ofskammti lyfja

Fyrr á árinu fjallaði Mannlíf um mögulegan ópíóíða faraldur á Íslandi. Svo virðist sem grunurinn hafi reynst réttur en Rúv sagði í gær frá því að aldrei hafi fleiri látist vegna lyfja­eitrunar.

„Svakalegasti morðinginn á götunni í dag“

Í mars ræddi Mannlíf við Kristján Hafberg Einarsson, sem er að eigin sögn amfetamíns sprautu­fíkill en hann var hættur að nota fíkniefni og að koma undir sig fótunum. Hann hafði samband við Mannlíf því hann hafði áhyggjur af því að fentanyl-faraldur væri hafinn á Íslandi. Sagðist hann vita um þrjá unga menn sem allir létust fyrir síðustu áramót en þeir voru allir að nota fentanyl. „Ég er nú ekki sjálfur morfín fíkill en fentanyl er svakalegasti morðinginn á götunni í dag. Ég þekki nú bara brot af morfín­fíklunum en ég kynntist þessum strákum á Gistiskýlinu og á áfanga­heimilum,“ sagði Kristján í viðtali við Mannlíf. Fentanyl er 100 sinnum sterkara verkjalyf en morfín.

Kristján sagði samskipta­forritið Telegram mikið notað til að selja fíkniefni hér á landi og að þar megi sjá gríðarlegt magn af ópíóíðalyfjum til sölu. Sagði hann þau koma aðallega frá Spáni að hann hélt en velti fyrir sér hvort læknar á Íslandi væru að skrifa þetta út í meira mæli en áður.

Sjá einnig: Fentanyl faraldur á Íslandi segir sprautu­fíkill: „Fentanyl er svakalegasti morðinginn á götunni“

Norðurlandamet í kaupum á ópíóíðum

Í annarri frétt Mannlífs um málið í mars kom fram að vísbendingar væru til staðar um að fentanyl-faraldur væri hafinn á Íslandi. Þar kom aukreitis fram að hvergi á Norður­löndunum sé verslað jafn mikið af ópíóðíum en á Íslandi. Í aldurs­hópnum 30-44 ára hafa lyfja­tengd andlát aukist um 47% á milli 2011-2015 og 2016-2020. Sala á fentanyli hafði lækkað umtals­vert frá árinu 2016 en 10% aukning mátti sjá á milli 2020 og 2021 sem verður að teljast nokkuð skörp breyting milli ára.

Sjá einnig: Vísbendingar um nýjan fentanyl-faraldur – Lyfja­tengdum andlátum hefur fjölgað um 47% hjá 30-44 ára
Sjá einnig: Ópíóíða-óða þjóð – Er fentanyl-faraldur hafinn á Íslandi?

Nöturleg tölfræði

Og nú hefur grunur Mannlífs verið stað­festur, ópíóíðafaraldur er hafinn á Íslandi. Ríkis­útvarpið sagði frá því í gær að aldrei hafi fleiri látist vegna lyfja­eitrana en á síðasta ári samkvæmt nýbirtum tölum Land­læknis­embættisins. Þar kemur fram að 46 lyfja­tengd andlát hafi orðið 2021, 24 á fyrri helmingi ársins og 22 á þeim síðari. Níu af þeim voru undir þrítugu. Algengustu lyfin sem fundust í þeim látnu voru oxycontin og flogaveikis­lyfið pregabalin en einnig fannst fentanyl og önnur ópíóíðalyf.

Af þeim 46 sem létust voru níu á aldrinum 18-29 ára en flestir voru á aldrinum 30-44 eða 17 manns. Þá voru 13 á aldrinum 45-59 ára, fjórir 60-74 ára og þrír 75 ára eða eldri. Karlarnir voru 28 en konurnar 18 talsins. Alls létust 34 vegna lyfja­eitrunar á höfuð­borgar­svæðinu en 12 á lands­byggðinni.

Fram kemur hjá Rúv að árið 2017 hafi verið gerðar 163 krufningar og þar hafi verið 37 eitranir. Í fyrra voru krufningarnar 173 talsins og eitranirnar 58 talsins. Oxycontin fannst í 15 einstaklingum og jafn margir voru með flogaveikis­lyfið Pregabil í sér. Fyrir fimm árum fannst það efni í sjö látnum einstaklingum. Þá fundust einnig sterk verkjalyf í þeim látnu í fyrra, lyf á borð við kódein, morfín, tramadól, fentanýl, Búprenorfín, Ketóbemídón og metadón. Af ólöglegum fíkni­efnum sem fundust í hinum látnu, eru amfetamín, sem er algengast, metamfetamín, MDMA, kókaín og THC, sem er virka efnið í kannabis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning