Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Gítarleikari The Allman Brothers Band er látinn: „Dickey var stærri en lífið sjálft“

Blessuð sé minning hans
Blessuð sé minn­ing hans Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ein aðal­sprauta The Allman Brothers Band, Dickey Betts er lát­inn, átt­ræður að aldri.

The Allman Brothers Band var ein af vin­sæl­ustu og áhrifa­mestu rokk­hljóm­sveitum Banda­ríkj­anna á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Gít­ar­leik­ari og einn af söngv­urum  hljóm­sveit­ar­innar, Dickey Betts, var einnig höf­undur nokk­urra klass­ískra rokkslag­ara, þar á meðal stærsta smell hljóm­sveit­ar­innar, Ramblin´Man sem kom út árið 1973. Meðal ann­arra laga eftir hann má nefna Blue Sky og Jessica, sem vann Grammy verð­laun og var notað sem þema­lag Top Gear þátt­anna.

Hljóm­sveitin til­kynnti um and­látið „með djúpum trega“ í gær. „Ótrú­legur gít­ar­leikur hans við hlið gít­ar­leik­ar­ans Duane Allman, skap­aði ein­stakan, tví­skiptan gít­ar­hljóm sem varð ein­kenn­is­hljóð tón­list­ar­stefn­unnar sem kall­ast Suð­ur­ríkjarokk,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

„Hann var ástríðu­fullur í líf­inu, hvort sem það var í tón­list­inni, við laga­smíðar, á fisk­veiðum, skot­veiðum, í sigl­ingum, golfi, karate eða í boxi. Dickey gaf sig allan og skar­aði fram úr í öllu sem vakti áhuga hans,“ sagði aukreitis í yfir­lýs­ing­unni. Þar kom einnig fram að hann hefði „lát­ist á frið­sælan hátt heima hjá sér“ eftir tíma­bil þar sem „heilsu hans hrak­aði“.

David Spero, umboðs­maður Betts til tutt­ugu ára, sagði the Associated Press að hann hefði þjáðst af krabba­meini í meira en ár og verið með lang­vinna lungna­þembu.

Í til­kynn­ingu á sam­fé­lags­miðlum Betts sagði: „Hinn goð­sagna­kenndi flytj­andi, laga­höf­undur, hljóm­sveit­ar­stjóri og fjöl­skyldu­faðir lést fyrr í dag á heim­ili sínu í Osprey, FL, umkringdur fjöl­skyldu sinni. Dickey var stærri en lífið sjálft og missir hans verður vart um allan heim.“

Betts gekk til liðs við bræð­urna Duane og Gregg Allman og ann­arra hljóm­sveit­ar­með­lima á sínum tíma en bandið bland­aði saman rokki og kán­trý, blús og jass, til að skapa Suð­ur­ríkja rokk.

The Allman Brothers band árið 1969.

„Þú getur heyrt áhrif hrein­tón­aðs modal ein­leiks hans í öllum Suð­ur­ríkjarokksveitum sem hafa fylgt eftir,“ skrif­aði tíma­ritið Rolling Stone á síð­asta ári og nefndi Betts á lista yfir 250 bestu gít­ar­leik­ara allra tíma.

The Allman Brothers Band varð þekkt fyrir raf­magn­aðan lif­andi flutn­ing sinn auk þess að ná 11 gull­plötum og fjórum plat­ínu­plötum á ferl­inum.

En saga þeirra er einnig umlukin harm­leikum. Duane lést í mót­or­hjólaslysi árið 1971 og annar stofn­með­limur, bassa­leik­ar­inn Berry Oakley, lést einnig í mót­or­hjólaslysi árið 1972. Gregg Allman dó árið 2017.

Hljóm­sveitin var inn­limuð í Frægð­ar­höll rokks­ins árið 1995 og hlaut Grammy-verð­laun fyrir ævi­starf sitt árið 2012.

Hér má sjá þá spila sinn þekktasta smell:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027