Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Konan segir Ástþór „sérstaklega rómantískan“: „Mér leiðast þvottavélar en er hrifin af þvottakonum“

Ástþór (Kristur) Magnússon
Ástþór (Kristur) Magn­ús­son Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ástþór Magn­ús­son er að sögn eig­in­konu hans alveg sér­stak­lega róm­an­tískur. Hann vill gefa þjóð­inni ávísun ef hann kemst á Bessa­staði og ætlar að leita frið­ar­samn­inga við Rússa, verði hann kos­inn for­seti. Þá leið­ist Ástþóri þvotta­vélar en er hrif­inn af þvotta­konum sem hugsa um hann.

Upp­á­halds­staður á Íslandi?

Þing­vellir.

Á forseti að sitja lengur en tvö kjörtímabil?

Nei.

Hvaða breytingar viltu sjá á stjórnskipan Íslands?

Aukið lýð­ræði.

Hver er þinn uppáhaldsforseti?

Enginn þeirra hefur virkjað emb­ættið til frið­ar­mála þrátt fyrir að hafa fengið ábend­ingar um í hvert stefndi í bók­inni Virkjum Bessa­staði sem dreift var til allra for­seta­fram­bjóð­enda og þjóð­ar­innar fyrir 28 árum. Því erum við nú í hættu­legri stöðu, komin í stríð við stórt kjarn­orku­veldi, erum að kaupa dráps­vopn sem við erum að senda í stríð þús­undir kíló­metra í burtu sem hefur ekk­ert með varnir lands­ins að gera og þeir sem vopnin okkar eru að drepa hóta nú að svara fyrir sig. Samkvæmt áliti flestra hern­að­ar­sér­fræð­inga er hætta á að það verði með kjarn­orku­vopnum.

Finnst þér að gera eigi kröfu um fleiri fjölda með­mæl­enda fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta Íslands?

Engin þörf á því lýð­ræðið er fag­urt. 

Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu?

Ég hef margar góðar fyr­ir­myndir geri ekki upp á milli þeirra.  

Hver er uppáhaldstónlist þín?

Give peace a chance. 

Hefurðu neytt ólöglegra fíkniefna?

Nei. 

Gerði Ólafur Ragnar Grímsson rétt með því að beita neitunarvaldinu á sínum tíma?

Já í Icesave var það rétt ákvörðun. 

Hver var stærsta stundin í lífi þínu?

Þær eru margar og fal­legar.  

Hver eru mestu vonbrigðin?

Hvernig lýð­ræðið er fótum troðið á Íslandi. 

Fallegasta ljóðið?

Paradís á jörð í bók­inni Virkjum Bessa­staði. 

Besta skáldsagan?

Held mig við stað­reyndir og sannar sögur. 

Hvað er það besta við Ísland?

Lands­lagið.

Kanntu á þvottavél?

Mér leið­ast þvotta­vélar en er hrifin af þvotta­konum sem hugsa vel um mig.

Ef þú ættir eina ósk, Íslendingum til hagsbóta, hver væri hún?

Að þjóðin fái ávísun frá Bessa­stöðum eftir að ég hef byggt hér upp nýjan atvinnu­veg friðar og lýð­ræð­is­þró­unar sem mun skila hund­ruðum millj­arða í þjóð­ar­búið.

Að þínu mati, hvert er helsta hlutverk forseta Íslands?

For­set­inn er full­trúi þjóð­ar­innar og á að standa vörð um hags­muni þjóð­ar­innar á Bessa­stöðum. For­seta­emb­ættið er þverpóli­tískt emb­ætti. Sam­ein­ing­ar­tákn þjóð­ar­innar, umboðs­maður lýðs­ins og eft­ir­lits­að­ili fyrir virku lýð­ræði. Til að þess þarf for­set­inn að vera með öllu ótengdur stjórn­mála­flokkum og hafa engin önnur hags­muna­tengsl sem geta haft áhrif á störf hans. For­set­inn er örygg­is­vent­ill um leið og hann leiðir fólk saman til að vinna góðum málum braut­ar­gengi fyrir þjóð­ina.

Borðarðu þorramat?

Auðvitað geri ég það eins enda fæddur og upp­al­inn á Íslandi.

Ertu rómantísk/ur?

Konan mín lýsti því yfir í sjón­varpi að ég væri alveg sér­stak­lega róm­an­tískur. 

Í stuttu máli; hvers vegna ætti að kjósa þig til emb­ættis for­seta Íslands? Bestu kveðjur,

Ef fólk kýs ekki mig þá er það að kasta atkvæði sínu á ófrið­ar­bálið. Það skiptir engu máli fyrir fólk hvern af hinum ell­efu það kýs. Það fólk er allt til­búið til að standa með kjós­endum í stríði, en ég er ekki til­bú­inn í það. Ég vil sem for­seti vinna til friðar og mitt fyrsta verk­efni verður að leita frið­ar­samn­inga við Rússa. 

Kjós­endur eiga ekki að kasta atkvæði í fólk sem ætlar að stimpla hvaða vit­leysu sem er frá Alþingi. Hlutverk for­seta er að vera örygg­is­vörður þjóð­ar­innar, hann er þjóð­kjör­inn full­trúi þjóð­ar­innar og á að standa vörð um hags­muni þjóð­ar­innar á Bessa­stöðum.

Mannlíf lagði spurn­inga­lista fyrir for­seta­fram­bjóð­endur , svo þjóðin fái að kynn­ast þeim betur. Munu svör þeirra fram­bjóð­end­anna sem ekki hafa verið nú þegar verið birt, birt­ast á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakjör 2024

InnlentForsetakjör 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakjör 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027