Á félagsfundi Klúbbs matreiðslumeistara, sem haldinn var í IKEA í apríl, var efnt til söfnunar til stuðnings fórnarlömbum jarðskjálftanna í Myanmar. Söfnunin rennur að fullu til „World Chefs Without Borders (WCWB)“ – mannúðarverkefnis á vegum Worldchefs. Með þessari aðgerð sýna íslenskir matreiðslumenn mikla samkennd og ábyrgð gagnvart samfélagslegu hlutverki sínu. Matreiðslufólk hvaðanæva af landinu tók þátt í söfnuninni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá klúbbnum.
„Við teljum mikilvægt að nota hæfileika okkar og tengslanet ekki einungis til að elda góðan mat, heldur einnig til að hjálpa fólki í neyð,“ segir Árni Þór Arnórsson, fyrir hönd Klúbbs matreiðslumeistara.
„Þessi gjöf er lítil aðgerð í sjálfu sér, en hún ber með sér sterkt og mikilvægt skilaboð um alþjóðlega samstöðu.“
Markmið „World Chefs Without Borders“ er að virkja matreiðslufólk um allan heim til að taka þátt í mannúðarverkefnum eftir náttúruhamfarir, stuðla að fræðslu og styðja uppbyggingu samfélaga. Framlagið frá Íslandi fer beint til hjálparstarfs í Myanmar, þar sem jarðskjálftinn hefur haft alvarleg áhrif á þúsundir manna.
„Við erum afar þakklát fyrir rausnarlegan stuðning frá kollegum okkar á Íslandi,“ segir fulltrúi WCWB. „Þessi gjöf gerir okkur kleift að koma aðstoð til þeirra sem mest þurfa á að halda.“
Aðgerðin er hluti af stærra markmiði WCWB um að hvetja matreiðslumenn – sérstaklega unga kokka – til að axla ábyrgð og taka þátt í hjálpar- og mannúðarverkefnum. Með þátttöku sinni sýna íslenskir matreiðslumenn að áhrif þeirra ná langt út fyrir eldhúsið og veita þannig öðrum innblástur til góðra verka.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir