Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

„Bæði axlarbein og viðbein standa út og suður“

Sonur Sigurðar bíður sár­kval­inn eftir aðgerð

Sigurður Jóhann birti mynd af syni sínum
Sigurður Jóhann birti mynd af syni sínum Hefur átt betri dag. Mynd: Sigurður Jóhann Jónasson/Facebook

Sjó­mað­ur­inn Sigurður Jóhann Jónasson gagn­rýnir harð­lega íslenska heil­brigð­is­kerfið eftir að sonur hans slas­að­ist alvar­lega í slysi á hlaupa­hjóli og bíður enn eftir aðgerð.

Sigurður greinir frá mál­inu í færslu á Facebook og segir son sinn hafa dottið af hlaupa­hjóli 12. ágúst. Við fallið hafi hann brotnað á við­beini og öxl og þurfi að gang­ast undir aðgerð vegna meiðsl­anna.

Að sögn Sigurðar hefur sonur hans hins vegar þurft að bíða heima eftir að kom­ast í aðgerð þrátt fyrir mikla verki.

„Er far­inn að sjá eftir því að vera Íslend­ingur. Sonur minn datt á hlaupa­hjóli, brotn­aði við­bein og öxl,“ skrifar Sigurður.

Hann segir syni sínum hafa verið gert að fasta frá klukkan ell­efu á kvöldin og bíða síðan eftir upp­lýs­ingum um hvort og hvenær hann kom­ist í aðgerð. Segir Sigurður að þetta hafi end­ur­tekið sig á meðan sonur hans bíði sár­kval­inn.

Sigurður sparar ekki stóru orðin í gagn­rýni sinni og seg­ist vera „brjál­aður“ yfir stöð­unni.

„Mér grunar að hér séu mann­rétt­indi brotin. Bæði axl­ar­bein og við­bein standa út og suður og hann er bara á biðlista,“ skrifar Sigurður og gagn­rýnir sér­stak­lega að sonur hans hafi ítrekað þurft að fasta vegna mögu­legrar aðgerðar án þess að kom­ast að.

Ekki liggur fyrir í færslu Sigurðar hvers vegna aðgerðin hefur dreg­ist eða hvenær gert er ráð fyrir að sonur hans kom­ist undir hníf­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Eftir 180 daga á sjúkrahúsi segir Ingólfur Marteinn Jones greiðslur sínar falla niður. Hann hafði vænst um 400 þúsund króna í desember.
Heimur

Segja Rússa hafa skipu­lagt árás undir fölsku flaggi í Póllandi

Heimur

Meintur flug­dólgur sleppur með hluta skrekks­ins

Heimur

Ísraelar hefja hern­að­ar­að­gerð í mið­hluta Gaza

Heimur

Greene telur trufl­an­irnar eftir kosn­ing­arnar ekki til­viljun

Innlent

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Maðurinn braut rúðu í útidyrahurð starfsmannsins rúmum sjö mánuðum eftir árásina til að komast inn á heimili hans.
Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ