Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Brynjar afsakar grín sitt um heilsu Guðmundar Inga

„Mik­il­vægt þó að til sé fólk sem tekur að sér að móðg­ast fyrir hönd ann­arra“

Brynjar Níelsson lögmaður
Brynjar Níelsson lög­maður Var eitt sinn þing­maður og síðar hér­aðs­dóm­ari. Mynd: Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir

Brynjar Níelsson, fyrr­ver­andi þing­maður, hafnar því að hafa gert lítið úr Guðmundi Inga Krist­ins­syni, þing­manni Flokks fólks­ins og fyrrum ráð­herra, og veik­indum hans á sam­fé­lags­miðlum í gær.

„Fyrrum mennta­mála­ráð­herra fór í hjarta­loku­að­gerð sem varð til þess að hann þurfti ekki að nota hækjur lengur eftir að hafa þurft að skakklapp­ast með þær árum saman. Þetta mun vera mesta krafta­verk sög­unnar síðan Jesús reisti Lazarus upp frá dauðum. Ég vildi gjarnan hitta þennan lækni og athuga hvort að hægt væri að fá nátt­úr­una aftur með svona aðgerð,“ skrif­aði þing­mað­ur­inn fyrr­ver­andi meðal ann­ars.

Mannlíf og aðrir fjöl­miðlar fjöll­uðu um málið og mátti sjá í athuga­semda­kerfum fjöl­miðla fólk senda Brynjari kaldar kveðjur.

Í athuga­semd sem Brynjar skrif­aði við færslu sína í dag neitar hann alfarið að hafa gert grín að Guðmundi.

„Ég er ekki að vega að Guðmundi eða tala niður til hans. Hann hefur sagt mér frá þessum slysum og veik­indum í kjöl­far þeirra. Hann not­aði sjálfur í því sam­tali að hann hafi þurft að skakklapp­ast með hækjur síðan. Spaugi­lega hliðin er sú að hjarta­loku­að­gerð hafi leitt til þess að hann losn­aði við hækj­urnar. Það þarf mik­inn vilja og óþol til að líta á skrif mín sem ég sé að tala niður til hans,“ skrif­aði hann.

Þá svar­aði hann einnig athuga­semd þar sem pist­ill hans var kall­aður ósmekk­legur á þann máta að við­kom­andi væri vís­bend­ing um að skop­skyn væri á und­an­haldi. „Mik­il­vægt þó að til sé fólk sem tekur að sér að móðg­ast fyrir hönd ann­arra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“