Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Með haustverk um helgar

Fríið allt löngu búið. Vinna, skóli og allar tóm­stundir komnar á fullt. Hvergi finnst tími yfir dag­inn og áður en þú veist af er komin helgi. Ah, já … helgi. Loksins hægt að slaka á! Alveg þar til þú manst að það er komið haust. Sumarið er búið og afneit­unin til einskis. Vot­viðra­sami gálga­frest­ur­inn er haf­inn og áður en þú veist af verður kom­inn vetur. Partíið er búið og nú þarf að laga til. Kristján Frið­berts­son skrifar grein í nýjasta tölu­blað Vikunnar um haust­verkin og hér grípum við örstutt niður í grein­ina sem eng­inn garð­eig­andi ætti að láta fram­hjá sér fara.

Það þarf nú ekki að ganga í öll verk strax. Svo er líka of gott veður til að fara ekki út að hjóla og í fjall­göngu, svo ekki sé minnst á berjamó. Nýta verður hvern góð­viðr­is­dag, við búum nú einu sinni á Íslandi. En að því kemur að himn­arnir gráta köldum, láréttum tárum. Þá er ekki eins gaman að fara út. Er þá ekki líka of leið­in­legt veður til að vera úti í garð­inum að laga til? Hin árlega áþján hefur tekið yfir: þú ert með haust­verk um helgar. Æ, ég græja þetta rétt bráðum. Afurðir sum­ars­ins þarf að taka upp fyrir vet­ur­inn og borða, frysta, súrsa eða þurrka. Grænkál og fjólu­blátt brokk­óli getur þó oft lifað ágæt­lega úti yfir vet­ur­inn og hið fjöl­æra, líkt og gras­laukur, fær bara að vera áfram á sínum stað.

Ávaxta­upp­skeru er að mestu lokið, en séu eplin ekki alveg orðin þroskuð lætur maður þau hanga eins lengi og hægt er á trjánum, í von um fullan þroska. Epli þola almennt smá­vegis dýfu fyrir neðan frost­mark. Aðrar leifar sum­ars­ins mega alveg skýla fjöl­ær­ingum, eða skella sér í partíið í safn­kass­anum. Allt sem hefur ummerki sýk­ingar skal þó fjar­lægja sem fyrst. Slíkt fer aldrei í safn­haug og sé því komið við er best hrein­lega að brenna það. Sýkt efni getur t.d. verið lauf með ummerki sveppa­sýk­ingar, eða greinar sýktra plantna.

Greinina í heild má lesa í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Kaupa blað í vef­verslun >

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers