Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Reykjavík ætlar að snúa milljarðahalla í afgang á aðeins einu ári

Áformin byggja á því að tekjur vaxi hraðar en útgjöld

Fjárhagsáætlun
Fjár­hags­á­ætlun Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri segir að stefnt sé að því að snúa við halla á rekstri Reykja­vík­ur­borgar á næsta ári. Mynd: BHJ

Reykja­vík­ur­borg gerir ráð fyrir miklum við­snún­ingi í rekstri á næsta ári sam­kvæmt frum­varpi að fjár­hags­á­ætlun fyrir árið 2027 sem lagt verður fram í borg­ar­stjórn í dag. Áformin byggja þó á fjöl­mörgum for­sendum og verður að koma í ljós hvort þær stand­ast.

Samkvæmt útkomu­spá stefnir í 6,6 millj­arða króna halla á A hluta borg­ar­innar í ár. Nýr meiri­hluti gerir hins vegar ráð fyrir 2,8 millj­arða afgangi árið 2027. Gangi það eftir yrði við­snún­ing­ur­inn 9,4 millj­arðar króna á einu ári og verður for­vitni­legt að sjá hvort það tekst.

Til að ná mark­mið­inu er meðal ann­ars gert ráð fyrir að tekjur auk­ist um 5,6 pró­sent á meðan rekstr­ar­út­gjöld hækki aðeins um 3,7 pró­sent. Þá á hag­ræð­ing í mið­lægri stjórn­sýslu að skila 2,3 millj­örðum króna á árs­grund­velli, meðal ann­ars með fækkun um 130 stöðu­gildi.

Skuldir A hluta hafa nær tvö­fald­ast frá árinu 2021 og nema nú 195 millj­örðum króna sam­kvæmt til­kynn­ingu borg­ar­innar. Þrátt fyrir það er stefnt að því að hefja nið­ur­greiðslu skulda árið 2028.

Samhliða þessu hyggst borgin verja 23,6 millj­örðum króna til fjár­fest­inga á næsta ári. Þar verða leik­skólar, grunn­skólar, íþrótta­mann­virki og önnur grunn­þjón­usta sett í for­gang.

„Við­var­andi halli hefur verið á grunn­rekstri borg­ar­innar og inn­viða­skuldin hefur vaxið gríð­ar­lega. Við ætlum okkur að snúa þess­ari stöðu við strax á næsta ári með áfram­hald­andi hag­ræð­ingum og ábyrgri fjár­mála­stjórn. Við hyggj­umst jafn­framt hefja skipu­lega nið­ur­greiðslu skulda á kjör­tíma­bil­inu. Tiltekt í rekstr­inum er nauð­syn­leg for­senda þess að fjár­fest­inga­geta borg­ar­innar verði styrkt og að hér sé hægt að veita fram­úr­skar­andi þjón­ustu. Við ætlum að koma Reykja­vík í fremstu röð og ég er bjart­sýn á fram­haldið,“ segir Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Viðreisn mælist með 9,2 prósenta fylgi og Miðflokkurinn með 15,1 prósent. Atli Þór segir Miðflokkinn „hreinlegri“ kost.
  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

  • Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu