Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Þú varst einfaldlega toppurinn á tilverunni í mínu lífi“

Bjarki Már Sig­valda­son lést þann 27. júní eftir sjö ára bar­áttu við krabba­mein en eig­in­kona hans, Ástrós Rut Sig­urð­ar­dóttir, greindi frá and­lát­inu á Facebook-síðu sinni. Ástrós hefur staðið þétt við bakið á manni sínum í gegnum veik­indin og talað opin­skátt um bæði góða og slæma tíma.

Ástrós var í for­síðu­við­tali í Vikunni í sept­em­ber árið 2016 en þá voru þau Bjarki búin að ákveða að setja lífið ekki lengur á bið vegna veik­ind­anna, heldur lifa því til fulls – voru að plana brúð­kaup og barneig­inir. „Það er ekki einu sinni víst að þetta heppn­ist en við viljum ekki lengur setja lífið á bið. Lífið er akkúrat núna og við eigum að njóta þess að vera til,“ sagði Ástrós í 36. tbl. Vikunnar 2016 þegar hún greindi frá til­von­andi tækni­frjóvgun.

„Ég er hætt að hugsa um hvað öðrum finnst og hef ákveðið að hlusta á sjálfa mig og hvað við Bjarki lifum fyrir. Ef Bjarki deyr frá ungu barni sínu og það spyr um hann gæti ég svarað: „Pabbi vildi eign­ast þig, hann lifði draum­inn sinn.“

Og þau stóðu sann­ar­lega við stóru orðin og nýttu dýr­mætan tíma til að njóta lífs­ins. Bjarki og Ástrós gengu í hjóna­band sum­arið 2017 og eign­uð­ust dótt­ur­ina Emmu Rut í sept­em­ber á síð­asta ári.

Í Facebook-færslu Ástrósar á laug­ar­dag­inn segir hún meðal ann­ars: „Þú áttir svo mikið í mér elsku besti minn, studdir mig í einu og öllu og róaðir mig niður og hafðir vit fyrir mér. Það sem við gátum kjaftað saman um lífið og til­ver­una alla daga og notið stund­anna, ég þú og Emma Rut.

Takk fyrir að hafa komið inn í líf mitt þegar ég var 16 ára gömul, ég varð ást­fangin við fyrstu sýn og er það enn í dag. Takk fyrir að ferð­ast með mér um heim­inn, gift­ast mér og eign­ast besta barn í heimi með mér sem mun bera öll góðu genin þín um ókomna tíð.

Ég ætla að standa mig í stykk­inu fyrir þig, ég mun ala upp Emmu eftir okkar lífs­gildum alveg eins og við töl­uðum um og mun ávallt passa uppá að hún eigi fullt af fal­legum minn­ingum um þig.“

Rit­stjórn Vikunnar sendir Ástrósu og fjöl­skudu hennar inni­legar sam­úð­ar­kveðjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers