Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Góður svefn er undirstaða vellíðunar

Mun erf­ið­ara er að takast á við til­ver­una og dag­legt amstur ef næt­ur­svefn­inn hefur verið af skornum skammti, og það á við full­orðna jafnt sem börn. Við tókum saman nokkur góð ráð sem gott er að hafa í huga þjá­ist þú eða barn þitt af ein­hvers konar vanda­málum tengdum svefni.

Geymdu snjalltækið frammi yfir nóttina

Margir kann­ast við það að ætla „aðeins að kíkja á Facebook“ fyrir svefn­inn, og skyndi­lega er klukku­tími lið­inn. Klukku­tími til eða frá getur skipt sköpum þegar tími til svefns er lít­ill fyrir. Þess fyrir utan getur sím­inn haft trufl­andi áhrif með ljósum, hljóðum og til­kynn­ingum sem geta truflað bæði börn og for­eldra.

Regla á hreyfingu og matarræði

Hreyfing vinnur gegn áhrifum streitu á mið­tauga­kerfið. Dagleg hreyf­ing hefur því góð áhrif á gæði svefns og heils­una okkar almennt. Mik­il­vægt er að fara hæfi­lega saddur að sofa og forð­ast þunga mál­tíð fyrir svefn. Sumum þykir gott að fá sér eitt­hvað létt fyrir svefn, til dæmis fló­aða mjólk.

Þeir sem vilja ná góðum næt­ur­svefn ættu að forð­ast daglúra.

Svefnrútína alltaf með svipuðum hætti

Svefn­rútína barna ætti að hefj­ast um 30 mín­útum fyrir hátta­tíma. Þessi rútína getur til dæmis falið í sér að að hátta sig, bursta tennur, lesa bók og kyssa góða nótt. Mik­il­vægt er að tryggja að barn hafi sinnt öllum þessum þörfum áður en það leggst upp í, svo ekki sé hægt að nota það sem afsökun til að koma ítrekað fram aftur. Mikið áreiti frá ljósi, svo sem tölvu og sjón­varpi, er ekki snið­ugt stuttu fyrir svefn­inn því það blekkir lík­amann með því að gefa vís­bend­ingu um að það sé enn þá dagur. Mik­il­vægt er að fara að sofa á svip­uðum tíma og vakna á svip­uðum tíma. Líka á frí­dögum og um helgar.

Magnesíum á kvöldin

Magnesíum hjálpar vöðvum lík­am­ans að slaka á með því að færa kals­íum úr vöðvum og aftur í blóðið þar sem það getur ferð­ast um allan lík­amann. Fyrir svefn­inn er þetta lyk­il­at­riði þegar kemur að vöðva­slökun og getur hjálpað þér að sofna og halda þér sof­andi.

Gættu að umhverfinu

Hita­stigið í her­berg­inu skiptir máli, og um að gera að hafa það hæfi­lega svalt.

Notaðu djúpöndun

Að taka góða slökun, með því að taka fjóra djúpa og góða and­ar­drætti, getur hjálpað lík­am­anum að slaka á, hvíl­ast betur og anda í eðli­legum takti fyrir svefn. Slík djúpöndun eykur fram­boð súr­efnis til heil­ans og örvar sjálf­virka tauga­kerfið (para­sympat­íska) sem styður við slökun. Slökun gerð með þessum hætti getur lækkað hjart­slátt­ar­tíðni og blóð­þrýst­ing og minnkað vöðva­spennu sem hjálpar okkur að sofna fljótt og vel.

Forðist daglúra

Þeir sem sofa illa þurfa að passa sig að dotta ekki yfir sjón­varp­inu á kvöldin eða leggja sig yfir dag­inn, þrátt fyrir að oft sé það ansi freist­andi. Börn á leik­skóla­aldri ættu ekki að sofa eftir klukkan 14 á dag­inn. Þriggja mín­útna stuttur lúr í bílnum seinni­part­inn er lík­legri til að valda svefnerf­ið­leikum en klukku­tímalúr kringum hádegi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers