Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Konu skellt í steininn fyrir að borga ekki skuld

Lögreglustöðin í miðbæ Reykjavíkur
Lög­reglu­stöðin í miðbæ Reykja­víkur Mynd: Lára Garðarsdóttir

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og nótt. Nokkur heimilis­ofbeldismál komu til kasta lögreglu auk þess sem afskipti voru höfð af fjölda ökumanna vegna gruns um umferðar­lagabrot.

Einn var hand­tekinn vegna rann­sóknar á heimilis­ofbeldi og tvö önnur heimilis­ofbeldismál voru skráð til rann­sóknar.

Þá var kona vistuð í fanga­klefa eftir að hún neitaði að greiða reikning á veitinga­stað.

Nokkur mál tengdust umferðinni. Lögregla hafði afskipti af ökumanni sem notaði ekki öryggis­belti og annar ökumaður var hand­tekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá reyndist jafnframt vera án ökuréttinda.

Afskipti voru einnig höfð af ölvuðum ökumanni og síðar var annar ökumaður hand­tekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis.

Þá stöðvaði lögregla ökumann sem hafði verið sviptur ökuréttindum. Annar var á bifreið sem var ekki með skráningar­merki og sá þriðji hafði ekki endurnýjað ökuréttindi sín.

Lögregla gerði jafnframt athugasemd við aksturslag ungmennis á rafhjóli og voru foreldrar þess látnir vita af málinu.

Að lokum þurfti lögregla að hafa afskipti af hópi ungmenna sem var til vandræða. Samkvæmt dagbók lögreglu höfðu ungmennin meðal annars kastað grjóti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Slysið varð aðfaranótt sunnudags á blautum vegi við Flúðir.
Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi