Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Fjölmennur samstöðufundur með Yazan litla haldinn í gær – Verður vísað úr landi á allra næstu dögum

Yazan á fjölmarga stuðningsmenn hér á landi.
Yazan á fjöl­marga stuðn­ings­menn hér á landi. Mynd: Aðsend

Fjöl­mennur sam­stöðu­fundur var hald­inn til stuðn­ings Yazan Tamimi, 12 ára fötl­uðum drengi frá Palest­ínu sem yfir­völd hyggj­ast reka frá landi á næstu dögum.

Vinir Yazans stóðu aftur fyrir sam­stöðu­fundi með Yazan Tamimi, fötl­uðum dreng sem vísa á úr landi, þrátt fyrir að það geti haft afger­andi áhrif á heilsu hans og líf. Samkvæmt síð­ustu fréttum gæti það gerst með mjög stuttum fyr­ir­vara.

Um 600 manns mætti á sam­stöðu­fund­inn í gær.

Fund­ar­stjóri sam­stöðu­fund­ar­ins var Sólveig Arn­ars­dóttir, leik­kona en ræður fluttu Tótla I. Sæmunds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Barna­heilla og Bjarni Karlsson, prestur og sið­fræð­ingur.

Þá var Unn­steinn og Haraldur auk barna­kórs með tón­list­ar­at­riði. Samkvæmt taln­ingu mættu um 600 manns á fund­inn.

Yazan, sem þjá­ist af hrörn­un­ar­sjúk­dóm­inum Duchenne, dvelur nú á sjúkra­húsi vegna hrak­andi heilsu­fars, bæði and­legs og lík­am­legs.

Yazan Tamimi

Alls 1430 ein­stak­lingar skrif­uðu undir eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu til stuðn­ings Yazan:

Það sem Yazan er fyrir bestu skal ávallt hafa for­gang.

Okkur ber að gera betur!

„Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa for­gang þegar stjórn­völd gera ráð­staf­anir um hagi þess“ (Barna­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna). Það er því satt og rétt að við eigum að lið­sinna Yazan hér á landi. Þessi 11 ára drengur er með sjald­gæfan vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dóm, Duchenne, og nýtur heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi sem læknar stað­festa að megi ekki rjúfa.

Við flutn­ing hans frá land­inu skerð­ist þjón­ustan veru­lega og setur heilsu og líf Yazans í hættu. Það yrði brot á rétti hans til að lifa, þroskast, njóta verndar, og umönn­unar í sam­ræmi við aldur og þroska.

Í samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks segir að í öllum aðgerðum, sem snerta fötluð börn, skuli fyrst og fremst hafa það að leið­ar­ljósi sem er við­kom­andi barni fyrir bestu.

Að hjálpa öðrum í neyð er ófrá­víkj­an­leg regla. Að rétta Yazan og fjöl­skyldu hjálp­ar­hönd er aðstoð sem veitt er af mannúð og skyldu­rækni. Það er því sið­ferði­lega rétt að hætta við brott­vísun hans.

Virðum þá mann­rétt­inda­samn­inga sem íslenska ríkið hefur lög­fest og und­ir­geng­ist og sýnum mannúð í verki.

Yazan á heima hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­ríkin missa stöðu sína sem land án misl­inga

Meira en 5.400 mislingatilfelli hafa greinst í Bandaríkjunum á árinu og átta manns látist. Faraldurinn er sá versti síðan 1991.
Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Heimur

Lítið fyr­ir­bæri í geimnum vekur stórar spurn­ingar

Innlent

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Lögregla rannsakar einnig tilkynningu um líkamsárás í miðborginni.
Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti