Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Glúmur minnist föðurafa síns

„Gaf allt sitt fyrir kjör verka­fólks þótt það bitn­aði á hans eigin fjöl­skyldu.“

Glúmur Bald­vins­son, alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur, minn­ist afa síns, Hanni­bals Valdi­mars­sonar fyrr­ver­andi ráð­herra og verka­lýðs­for­ingja, í per­sónu­legri færslu þar sem hann rifjar upp áhrifa­mikla nær­veru hans, flókna fjöl­skyldu­sögu og arf­leifð á vinstri væng íslenskra stjórn­mála. Hannibal var einn umdeild­asti og skraut­leg­asti stjórn­mála­leið­togi síð­ustu aldar.

„Afmæl­is­dagur afa enn og aftur. Ég náði aldrei að kynn­ast honum náið af því hann og pabbi were rowing einsog sagt er á gam­alli írsku. Áttu eitt­hvað óuupp­gert,“ skrifar Glúmur og lýsir því hvernig sam­band föður hans, Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar og afa hafi haft áhrif á tengsl þeirra.

Þrátt fyrir það hafi Hannibal verið stöðug nær­vera í lífi hans undir það síð­asta. Glúmur segir að síð­ustu ár ævi sinnar hafi afi hans reglu­lega komið í sunnu­dags­mat á heim­ili fjöl­skyld­unnar. „En síð­ustu ár hans kom hann reglu­lega á Vest­ur­göt­una í lamb á sunnu­dögum. En hann var þá orð­inn rosk­inn. Mælti fátt en mælti vel og á óað­finn­an­legri íslensku sem nú er nán­ast útdauð.“

Í færsl­unni rifjar Glúmur einnig upp hvernig nafn Hanni­bals hafi vakið sterk við­brögð víða um land. „En nær­vera hans var ævar­andi frá því ég man eftir. Fólk stopp­aði mig á götum úti á Ísafirði og jafn­vel Reykja­vík til að benda mér á hvurs konar stór­menni afi minn væri. En ekki alltaf,“ skrifar hann.

Hann lýsir einnig minn­ingu úr æsku sem sýnir hversu umdeild per­sóna Hannibal var í augum sumra. „Púki frá Bol­ung­ar­vík vissi að afi væri Hannibal þegar ég fór um hlíð­ina með vinum mínum og kall­aði: Mikið var að beljan bar í fjós­inu hjá Hannibal. Ég tryllt­ist og end­aði þetta með blóð­ugum slags­málum. Ég stend enn á því að íhaldsidjótið pabbi hans hafi att honum á mig.“

Glúmur segir að þrátt fyrir allt hafi hann aldrei efast um grund­vall­ar­gildi afa síns og þá fórn sem hann færði í þágu verka­lýðs­ins. „En hvað um það. Ég veit fátt en ég veit að Hannibal var frá­bær skóla­stjóri og kenn­ari og elskaði alþýð­una og gaf allt sitt fyrir kjör verka­fólks þótt það bitn­aði á hans eigin fjöl­skyldu.“

Að lokum lýsir hann Hannibal sem manni sem lifði lífi sínu af heil­indum og eld­móði. „Hann var verka­lýðs­for­ingi af ástríðu og náð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers