Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Hildur í nauðvörn hjá borgarstjórnarflokknum – Flokkurinn er „ósamstígur og stefnulaus“

Hildur Björnsdóttir
Hildur Björns­dóttir Mynd: Twitter

Hildur Björns­dóttir, leið­togi borg­ar­stjórn­ar­flokks sjálf­stæð­is­manna, er í nauð­vörn vegna afstöðu sinnar til upp­færðs sátt­mála um Borg­ar­línu. Á fundi borg­ar­stjórn­ar­flokks­ins í fyrra­dag var harka­lega deilt um afstöðu Hildar sem ein borg­ar­full­trúa stendur með áformum um Borg­ar­línu. Heim­ildir Mannlífs herma að allt sé á suðu­punkti og skýr vilji til þess að Hildur víki sem leið­togi. Þetta ástand er þvert á það sem Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi sagði við Mannlíf.

Hart var deilt á fund­inum vegna þessa og reyndi Hildur að sann­færa aðra borg­ar­full­trúa um heil­indi sín. Mikil reiði var á bóða bóga og mun Hildur hafa haft í hót­unum um að bregð­ast við opin­ber­lega ef deil­urnar yrðu ekki settar niður. Ragn­hildur Alda, annar maður á lista flokks­ins, flutti eld­messu og gagn­rýndi afstöðu Hildar og vara­manns hennar, Söndru Ocares,  harka­lega. Ljóst má vera að Hildur nýtur ekki lengur trausts til að leiða hóp­inn.

Óánægja með störf Hildar hefur lengi verið á meðal félaga hennar. Hún þykir ekki hafa sinnt hlut­verki sínu af þeirri alúð sem þarf. Þá er hún sökuð um und­an­láts­semi við meiri­hluta borg­ar­stjórnar í bens­ín­stöðv­ar­mál­inu og fleiri málum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn reynd­ist vera þrí­klof­inn þegar upp­færður sátt­máli um Borg­ar­línu var bor­inn undir atkvæði. Fjórir full­trúar flokks­ins, Ragn­hildur Alda Vil­hjálms­dóttir, Marta Guð­jóns­dóttir, Björn Gíslason og Kjartan Magn­ús­son greiddu atkvæði gegn sátt­mál­anum. Hildur Björns­dóttir fór í skemmti­ferð til útlanda með móður sinni áður en til afgreiðslu máls­ins kom. Vara­maður hennar, Sandra Hlíf Ocares, fór að for­dæmi Hildar og studdi sátt­mál­ann. Friðjón Frið­jóns­son sat hjá í mál­inu.

Tvö félög Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa ályktað um þá stöðu sem er uppi í stjórn­lausum borg­ar­stjórn­ar­flokknum. Heimdallur, félag ungra sjálf­stæð­is­manna hefur sent for­ystu flokks­ins og trún­að­ar­mönnum ítar­lega ályktun. Þá hefur Vörður, kjör­dæm­is­fé­lag flokks­ins í Reykja­vík, einnig ályktað í sömu veru. Álykt­an­irnar hafa ekki farið hátt en Mannlíf hefur þær undir höndum.

Framganga oddvitans

Í ályktun Heimdallar er bent á ábyrgð Hildar á ástand­inu. Þar segir að stjórn félags­ins harmi að  borg­ar­stjórn­ar­flokk­ur­inn gangi ekki sam­stíga í atkvæða­greiðslu um Borg­ar­línu. Í álykt­un­inni sem er dag­sett 22. sept­em­ber 2024, segir að borg­ar­stjórn­ar­flokk­ur­inn glími þegar við þann orð­s­týr að vera „ósam­stígur og stefnu­laus“. Fram­ganga Hildar er í ályktun Heimdallar gagn­rýnd og fær leið­tog­inn fall­ein­kunn. Þar segir að „baga­legt sé að odd­viti flokks­ins gefi sig ekki á tal við fjöl­miðla í kjöl­far þrí­klofn­ings flokks­ins“. Stjórnin seg­ist eiga erfitt með að tala máli flokks­ins í Reykja­vík á meðan „upp­á­komur“ sem þessar standi.

Stjórn Varðar kom saman þann 17. sept­em­ber og lýsti þar harmi sínum með ástandið í borg­ar­stjórn­ar­flokknum Sú ályktun er ekki eins ítar­leg og hjá Heimdalli.

Ályktun Heimdallar er harka­leg og afdrátt­ar­laus.

„Stjórn Varðar harmar að borg­ar­stjórn­ar­hópur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi ekki sam­ein­ast í afstöðu sinni til upp­færðar sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á borg­ar­stjórn­ar­fundi 17.sept­em­ber 2024,“ segir í álykt­un­inni sem Albert Guð­munds­son und­ir­ritar.

Fari svo að Hildur víki sem odd­viti mun Ragn­hildur Alda taka við af henni sem leið­togi  flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir