Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

„Í björgunarsveitum þrífst alls kyns fólk og við erum öll velkomin“

Anna Krist­jáns­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir björg­un­ar­sveit­irnar í kjöl­far leið­in­legs atviks við fjár­öflun

Anna Kristjánsdóttir
Anna Krist­jáns­dóttir Anna hefur verið björg­un­ar­sveit­ar­kona til margra ára

Anna Krist­jáns­dóttir, vél­stjóri og fyrr­ver­andi björg­un­ar­sveit­ar­kona, minnir á mik­il­vægi fjöl­breyti­leika og sam­stöðu í björg­un­ar­sveitum í færslu sem hún birti á Facebook í dag í kjöl­far umræðu um útlit Neyð­ar­kalls­ins í ár.

Í færsl­unni bendir Anna á að Neyð­ar­kall­inn, sem seldur er árlega til styrktar björg­un­ar­sveitum lands­ins, sé í hvor­ug­kyni og hafi bæði karlar og konur áður verið fyr­ir­myndir hans. „Þó að venju­lega sé talað um neyð­ar­kall­inn í karl­kyni, þá hafa nokkrar stúlkur verið not­aðar sem fyr­ir­myndir að neyð­ar­kall­inum,“ skrifar hún.

Að þessu sinni er Neyð­ar­kall­inn straum­vatns­björg­un­ar­maður í minn­ingu Sigurðar Krist­ó­fers McQuillans Ósk­ars­sonar, for­manns björg­un­ar­sveit­ar­innar Kyndils í Mos­fellsbæ, sem lést í slysi á æfingu í fyrra. Sigurður var dökkur á hör­und, og hefur Neyð­ar­kall­inn í ár því sama yfir­bragð. „Við erum nefni­lega alls­konar. Það sem sam­einar okkur er vilj­inn til að gera gagn á neyð­ar­stundu,“ skrifar Anna í færsl­unni.

Fréttir bár­ust í gær af því að björg­un­ar­sveita­kona sem sinnti fjár­öflun hefði orðið miður sín eftir að fá fjölda athuga­semda um húð­lit Neyð­ar­kalls­ins. Anna bendir á að slíkar athuga­semdir eigi ekki heima í sam­fé­lagi þar sem björg­un­ar­fólk starfar saman án til­lits til upp­runa eða trúar.

„Í björg­un­ar­sveitum þrífst alls kyns fólk og við erum öll vel­komin,“ skrifar hún. „Þar er ekki velt sér upp úr kyn­hneigð né kyn­vit­und, trú­hneigð, lit­ar­hætti eða upp­runa. Í björg­un­ar­sveit­unum er pláss fyrir alla sem geta lagt eitt­hvað af mörkum í sjálf­boða­starfi, og það er þörf fyrir sem flesta.“

Að lokum segir Anna að hún muni sjálf kaupa Neyð­ar­kall­inn í ár, „hvort sem hann er karl eða kona, hvítur, svartur, múslími, sam­kyn­hneigður eða trans“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers